Lífið

Karlmenn breyta sér í stórstjörnur á Instagram

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Kassamerkið #makeuptransformation tröllríður nú Instagram og er vægast sagt spaugilegt að fara í gegnum myndirnar sem eru merktar með því.

Á þeim sýna karlmenn fram á kraft förðunarinnar og umbreyta sér í frægar persónur í fjórum skrefum.

Þetta er auðvitað meira grín en alvara eins og sést vel á meðfylgjandi myndum.

Hér er svo hægt að sjá fleiri myndir sem merktar eru með kassamerkinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×