Handbolti

Kári ósáttur við rauða spjaldið: Þeir búa eitthvað til út af því að þetta er sjónvarpsleikur

Ingvi Þór Sæmundsson í Hertz-höllinni skrifar
Kári var ekki sáttur í leikslok.
Kári var ekki sáttur í leikslok. vísir/ernir
Kári Garðarsson, þjálfari Gróttu, var hundfúll með að missa toppsæti Olís-deildar kvenna í hendur Hauka í dag.

Grótta leiddi með þremur mörkum í hálfleik, 14-11, í uppgjöri toppliðanna en Haukar voru miklu sterkari í upphafi seinni hálfleiks, skoruðu sex fyrstu mörk hans og unnu að lokum þriggja marka sigur, 19-22.

"Við náðum ekki að skapa okkur færi og vorum að sama skapi klaufar í varnarleiknum. Ramune [Pekarskyte] leysti mikið inn og við leystum það ekki nógu vel," sagði Kári sem var langt frá því að vera sáttur með dómara leiksins, þá Bjarka Bóasson og Gunnar Óla Gústafsson.

"Það var algjörlega augljós ruðningsdómur sem þeir sleppa þegar þær skora snemma í seinni hálfleik. Síðan stoppa þeir tímann þegar við erum komnar í færi til að veita eitthvað tiltal og svo ég fari ekki í þetta rauða spjald," sagði Kári og vísaði til rauða spjaldsins sem Anna Úrsúla Guðmundsdóttir fékk á 50. mínútu fyrir, að því er virtist, afar litlar sakir.

"Þetta var skandall og breytti leiknum. Þeir segja að hún rífi í hárið á henni. Manneskjan stendur bara og er ekkert sérstaklega hársár og er ágæt þegar hún labbar í burtu.

"Þú verður að lesa í augnablikið, það er ekki eins og þakið hafi verið að rifna af húsinu og allir að biðja um eitthvað. Þá búa þeir bara til eitthvað, líklega út af því að þetta er sjónvarpsleikur. Ég ætla að giska á það."

Kári var sömuleiðis ósáttur við sóknarleik síns liðs en hefur hann áhyggjur af því á hversu lágt plan hann getur dottið?

"Jájá, auðvitað er ég það. Ég var samt sáttur við fyrri hálfleikinn þar sem við skorum 14 mörk og klúðrum auk þess 3-4 færum. Síðan kom seinni hálfleikurinn þar sem við náðum ekki að búa til stöður og fylgja því nægjanlega vel eftir," sagði Kári að endingu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×