Fótbolti

Kári gæti fengið tilboð frá Englandi

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Kári hefur leikið einstaklega vel í íslensku vörninni á EM.
Kári hefur leikið einstaklega vel í íslensku vörninni á EM. vísir/getty
Kári Árnason hefur vakið mikla athygli fyrir frammistöðu sína á EM í Frakklandi.

Kári hefur verið sterkur í hjarta íslensku varnarinnar, auk þess sem hann hefur lagt upp tvö mörk.

Kári leikur með Malmö í Svíþjóð en þjálfari liðsins, Allan Kuhn, segir að stærri lið í Evrópu muni eflaust sýna honum áhuga í kjölfar frammistöðunnar á EM.

„Það getur vel verið að hann fái tilboð frá liðum á Englandi,“ sagði Kuhn í samtali við Sydsvenskan.

„Ég get ekki haft áhyggjur af mínu starfi, ég hugsa ekki þannig. Ég samgleðst Kára. Hann kemur væntanlega fullur sjálfstrausts aftur til okkar,“ bætti Kuhn við. Hann segir að Kári og félagar í íslenska landsliðinu geti komið á óvart gegn Frökkum á sunnudaginn.

„Ég held að Ísland eigi fína möguleika í næsta leik, það getur enginn sagt að sigurinn á Englandi hafi ekki verið sanngjarn,“ sagði Kuhn.

Viðar Örn Kjartansson, samherji Kára hjá Malmö, sér það alveg gerast að Kári fari aftur til Englands, þar sem hann lék áður með Plymouth og Rotherham United.

„Við höfum talað um það í klefanum. Af hverju ekki? Hann er 33 ára en maður veit aldrei hvað gerist. Miðað við frammistöðu hans á EM á hann skilið að spila í ensku úrvalsdeildinni,“ sagði Viðar sem er næstmarkahæstur í sænsku deildinni með átta mörk.


Tengdar fréttir

EM-dagbók: Ekkert vandræðalegt við tapið í Nice

Síðan flautað var til leiksloka á Stade de Nice í fyrrakvöld og frækinn sigur strákanna okkar á Englendingum var staðreynd hafa enskir fjölmiðlar keppst við að gera lítið úr eigin landsliði.

Heimir: Við viljum enda eins og Leicester

Heimir Hallgrímsson segir að hann vilji að EM-ævintýri íslenska landsliðsins fái sama farsæla endi og saga Leicester í ensku úrvalsdeildinni í vetur.

Draumasóknin sem sendi Englendinga heim af EM

Óánægðir Bretar buðu upp á Brexit 1.0 en aðeins nokkrum dögum síðar bjó súpersókn íslenska fóboltalandsliðsins til Brexit 2.0 og sendi súra Englendinga enn einu sinni snemma heim af stórmóti í fótbolta.

Hannes: Ég er stoltur Halldórsson

Hún var eftirminnileg stundin þegar Hannes Þór Halldórsson, markvörður íslenska landsliðsins, fór og faðmaði föður sinn í stúkunni á Allianz Riviera leikvanginum í Nice eftir á Íslandi hafði unnið England í sextán liða úrslitunum á EM í Frakklandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×