Fótbolti

Kári: Möguleikinn á Meistaradeildinni heillaði

Hjörtur Hjartarson skrifar
„Þetta var algjör snilld, að komast úr 2. deild í enska í Meistaradeildina á þremur árum,“ sagði Kári Árnason, leikmaður Malmö, sáttur í samtali við Hjört Hjartason í Akraborginni í dag.

„Ég þurfti að komast í burt frá Rotherham og þegar þú ert kominn á þennan aldur er ekki mikið í boði. Ég var ekki beint að velja úr tilboðum og þetta var eitt af þessum spennandi tilboðum. Ég var orðinn þreyttur á starfsumhverfinu hjá Rotherham og herstjórninni þar.“

Kári viðurkenndi að það hefði verið smá bakslag að fara aftur til Svíþjóðar eftir að hafa verið á Englandi en möguleikinn á Meistaradeildinni heillaði.

„Þetta er ekki í ensku deildinni en hér var möguleiki á að komast í Meistaradeildina og það heillaði vissulega. Heillaði að klára ferilinn og hafa spilað í deild þessarar bestu og það bætir upp fyrir að vera að spila í aðeins minna spennandi deild.“

Kári sagði að stemmingin á vellinum hjá Malmö væri frábær en heimavöllur liðsins hefur verið öflugur undanfarin ár.

„Stemmingin er frábær á vellinum. Það eru villtir stuðningsmenn sem minna mann á þá ensku á áttunda áratugnum. Það er alltaf fullt á stórum leikjum,“ sagði Kári en hann sagði að stemmingin á Celtic Park hefði verið ólýsanleg.

„Tilfinningin var ólýsanleg. Það eru til stærri vellir í heiminum en stemmingin þarna var frábær, 60.000 brjálaðir Skotar. Það sást á leik okkar strax í byrjun, þeir gátu gert út um einvígið á fyrstu mínútum leiksins en sem betur fer vöknuðum við til lífsins. Ég vildi helst fá Celtic í þessum drætti.“

Dregið verður í riðlakeppnina á morgun en Kári segist vera með blendnar tilfinningar hvort hann vilji fá þrjá stórleiki eða fá minni lið sem þeir eigi meiri möguleika gegn.

„Maður vill auðvitað fá mótherja sem þú getur unnið allaveganna einn leikinn. Það er raunsætt að vilja forðast stærstu liðin en þetta eru allt sterk lið og við verðum alltaf ólíklegri aðilinn. Það væri ákveðið svekkelsi ef við fengjum ekkert stórlið en á sama tíma stórkostlegt ef við kæmumst áfram þar.“

Kári hefur verið fyrirliði í nokkrum leikjum hingað til en hann segir að það sé einn konungur í liðinu.

„Ég var fyrirliði í fyrsta leiknum sem ég spilaði en það skýrir sig eflaust í því að þetta er ungt lið. Markus Rosenberg er konungurinn í bænum og í liðinu og ég held að því verði ekki haggað.“


Tengdar fréttir

Kári: Það besta sem ég hef upplifað

Malmö tryggði sér í gær sæti í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu annað árið í röð eftir 2-0 sigur á Celtic í seinni leik liðanna í síðustu umferð forkeppninnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×