Erlent

Kallaði Trump aumingja og tryllti lýðinn

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Jeb Bush berst fyrir lífi sínu.
Jeb Bush berst fyrir lífi sínu. vísir/getty
Jeb Bush fékk fullan sal af fólki til að standa upp úr sætum sínum með því að kalla mótframbjóðanda sinn, auðkýfinginn Donald Trump, aumingja á kosningafundi í New Hampshire í dag.

„Það er veikileikamerki þegar þú gerir grín að fötluðum,“ sagði Bush. „Hvers konar maður myndi gera það? Þú myndir ekki vilja gera þannig mann að forseta Bandaríkjanna, ég get lofað ykkur því. Það er veikleikamerki þegar þú kallar John McCain, Leo Thorsness eða einhvern annan stríðsfanga, sem hefur þjónað landi sínu, eitthvað annað en bandarískar hetju. Kalla þá aumingja? Donald Trump, þú ert aumingi!“

Þar vísaði Jeb Bush til liðlega 6 mánaða gamalla ummæla auðkýfingsins þar sem hann vó að herferli fyrrum forsetaframbjóðandans John McCain sem var handsamaður í Víetnam-stríðinu. „Hann er ekki stríðshetja,“ sagði Trump í júlí síðastliðnum um McCain. „Hann er ekki stríðshetja af því að hann náðist. Ég kann vel við fólk sem náðist ekki.“

Á Twitter-síðu sinni bætti hann um betur og sagði að McCain hafi ekki einungis sinnt fyrrum hermönnum illa heldur hafi hann staðið sig illa þegar hann tapaði fyrir Barack Obama, fráfarandi Bandaríkjaforseta, í kosningunum 2008.

 

Á fundinum í dag tók Jeb einnig upp hanskann fyrir bróður sinn, fyrrverandi forsetann George W. Bush. „Ég mun ekki gagnrýna Barack Obama fyrir neitt frá fyrsta degi. Ég fékk gjörsamlega upp í kok af því hvernig hann kenndi bróður mínum um allt og ég mun ekki gera honum það,“ sagði Jeb Bush.

Samtímis, á öðrum kosningafundi, sagði Donald Trump að Jeb Bush væri handbendi lyfjaiðnaðarins og að það væri ómöguleiki fyrir Jeb að bera sigur úr býtum í komandi forsetakosningum.

Forval Repúblikanaflokksins fer fram í New Hampshire á þriðjudag og allar spár benda til að Trump muni fara með sigur af hólmi. Þó skal taka spánum með fyrirvara enda benti allt til þess að auðkýfingurinn myndi sigra forkosningarnar í Iowa-ríki í síðustu viku. Annað kom á daginn og stóð Ted Cruz uppi sem sigurvegari. 

Þá gera fjölmargir stjórnmálaskýrendur ráð fyrir að meðbyrinn sem Marco Rubio fékk í Iowa muni skila honum langt í kosningunum á þriðjudag. Jeb Bush má að sama skapi búast við betra gengi í New Hampshire en í liðinni viku, einna helst vegna þeirrar gífurlegu áherslu sem hann hefur lagt á ríkið í kosningabaráttu sinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×