Fótbolti

Kagawa á leið til Dortmund

Anton Ingi Leifsson skrifar
Kagawa er á leið til Dortmund.
Kagawa er á leið til Dortmund. Vísir/Getty
Shinji Kagawa er á leið til Borussia Dortmund á ný frá Manchester United, en þetta segir Kicker á vef sínum.

Talið er að kaupverðið hljóði uppá átta milljónir evra, en United keypti Japanann á sextán milljónir evra á sínum tíma.

Kagawa sem spilaði með Dortmund 2010 til 2012 er á leið "heim" aftur, en hann hefur ekki verið í náðinni hjá stjórum Manchester United. Hann spilaði einungis 38 leiki á tíma sínum hjá United og skoraði sex mörk.

Þýski miðillinn Kicker segir að eina sem sé eftir er að Dortmund staðfesti þetta, en talið er að Kagawa skrifi undir fjögurra ára samning eða til ársins 2018.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×