Kæri herra Skap ofsi 1. september 2009 05:45 Nú hefur þú um nokkurt skeið stundað þá iðju að skvetta rauðri málningu á hús og bíla þeirra sem á einhvern hátt hafa tengst hinni íslensku útrás eða hinu íslenska bankahruni. Þetta gerir þú í skjóli nætur og lætur skapofsa þinn miskunnarlaust bitna á steindauðum hlutum þessa fólks. Nú ætla ég ekki að halda því fram að sumir af þessum einstaklingum eigi ekki skilið að láta skvetta einhverju á sig en hins vegar hefur það lítið að segja að skvetta í skjóli nætur á dauða hluti sem tryggðir eru bak og fyrir. Það er því eingöngu til þess fallið að valda okkur, almenningi, þér og mér, meira tjóni en orðið hefur. Kæri herra Skap ofsi, þú gerir þér væntanlega grein fyrir því að þessir bílar eru tryggðir? Þú gerir þér grein fyrir því að þessi hús eru tryggð? Og það að þau séu tryggð þýðir að tjónið er borgað úr svokölluðum bótasjóðum, sem vill svo skemmtilega til að er í eigu allra landsmanna. Ef gengið er á þá sjóði vegna þess að þig langar að stunda eitthvert flipp í skjóli nætur með lambhúshettu á hausnum svo engin komist að því hver þú ert, þá ert þú, herra Skap ofsi, að auka tjón okkar almennings enn meira en sem komið er. Af því að á endanum þurfum við að greiða tryggingarnar okkar sem hækka við þínar gjörðir. Mig langar því að biðja þig vinsamlegast um að hætta þessu paufi um miðjar nætur með svartan poka yfir hausnum og lélegt dulnefni. Þú gætir hins vegar prófað að banka á dyrnar hjá útrásarvíkingunum, kynnt þig með fullu nafni og skvett einhverju á þá mín vegna. Og borgað svo brúsann sjálfur. Höfundur er leikari. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 13.06.2026 Halldór Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson Skoðun Skoðun Skoðun Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson skrifar Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Veit „óvinur númer eitt“ að hann er númer eitt? Jón Steinar Sæmundsson skrifar Skoðun Að loka augunum fyrir hinu augljósa skrifar Skoðun Færeyingar eru ekki í ESB en… Sigurður Steinar Ásgeirsson skrifar Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Dagur í lífi Íslendinga árið 2040 Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Skólafrí - skelfing eða sæla Fjalar Freyr Einarsson skrifar Skoðun Sagan um afganginn sem hvarf Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason skrifar Skoðun Hver ertu þegar þú réttlætir að barn sé lokað inni? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skynsemi fremur en upphrópanir í útlendingamálum Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Já, tökum okkur Færeyinga til fyrirmyndar Hjörtur j. Guðmundsson skrifar Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson skrifar Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Við þurfum ekki ESB – eða hvað? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Það er verið að efla framhaldsskóla og verkmenntun Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Seiðkarlar fyrri alda Steingrímur Gunnarsson skrifar Skoðun Hverjir borga brúsann? Franklín Ernir Kristjánsson skrifar Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar Skoðun Hvað varð um gangbrautirnar? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Misskilningur: RÚV, Silfrið og meint hlutdrægni Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Árnar eru ekki hreinsistöð fyrir sjókvíaeldi Brynjar Arnason skrifar Skoðun Þarf vinnuskóli að vera vesen? Íris Róbertsdóttir skrifar Sjá meira
Nú hefur þú um nokkurt skeið stundað þá iðju að skvetta rauðri málningu á hús og bíla þeirra sem á einhvern hátt hafa tengst hinni íslensku útrás eða hinu íslenska bankahruni. Þetta gerir þú í skjóli nætur og lætur skapofsa þinn miskunnarlaust bitna á steindauðum hlutum þessa fólks. Nú ætla ég ekki að halda því fram að sumir af þessum einstaklingum eigi ekki skilið að láta skvetta einhverju á sig en hins vegar hefur það lítið að segja að skvetta í skjóli nætur á dauða hluti sem tryggðir eru bak og fyrir. Það er því eingöngu til þess fallið að valda okkur, almenningi, þér og mér, meira tjóni en orðið hefur. Kæri herra Skap ofsi, þú gerir þér væntanlega grein fyrir því að þessir bílar eru tryggðir? Þú gerir þér grein fyrir því að þessi hús eru tryggð? Og það að þau séu tryggð þýðir að tjónið er borgað úr svokölluðum bótasjóðum, sem vill svo skemmtilega til að er í eigu allra landsmanna. Ef gengið er á þá sjóði vegna þess að þig langar að stunda eitthvert flipp í skjóli nætur með lambhúshettu á hausnum svo engin komist að því hver þú ert, þá ert þú, herra Skap ofsi, að auka tjón okkar almennings enn meira en sem komið er. Af því að á endanum þurfum við að greiða tryggingarnar okkar sem hækka við þínar gjörðir. Mig langar því að biðja þig vinsamlegast um að hætta þessu paufi um miðjar nætur með svartan poka yfir hausnum og lélegt dulnefni. Þú gætir hins vegar prófað að banka á dyrnar hjá útrásarvíkingunum, kynnt þig með fullu nafni og skvett einhverju á þá mín vegna. Og borgað svo brúsann sjálfur. Höfundur er leikari.
Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar
Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar