Kæra 28 nafnlausa notendur spjallborðs 16. júní 2007 13:21 Ósvífnir einstaklingar nota Netið til að koma höggi á fólk. MYND/Getty Images
Tvær bandarískar konur hafa höfðað mál á hendur 28 notendum spjallborðs vegna ærumeiðinga og hótana um líkamsmeiðingar. Á spjallborðinu koma einstaklingar fram undir dulnefni og hafa konurnar krafist þess að fá allar þær upplýsingar frá umsjónarmönnum borðsins og netþjónustuaðilum sem gætu afhjúpað hina nafnlausu einstaklinga. Sérfræðingar telja fordæmisgildi málsins mikið og það muni hafa mikil áhrif á framtíð nafnlausra spjallborða á Netinu. Um er ræða spjallborð sem er aðallega notað af lögfræðinemum í Bandaríkjunum. Konurnar tvær telja sig hafa orðið af atvinnutækifærum vegna hótana og ófrægingarherferðar 28 notenda spjallborðsins. Málið á rætur sínar að rekja til ársins 2005 en þá hóf notandi sem kallar sig StanFORDtroll spjallþráð þar sem konurnar voru kallaðar öllum illum nöfnum og þær sagðar vera lélegir námsmenn. Þá var þeim hótað líkamsmeiðingum og nauðgunum. Alls stóðu hótanirnar í tvö ár áður en konurnar ákváðu að kæra. Lögfróðir menn í Bandaríkjunum telja málið geti haft mikið fordæmisgildi og mögulega haft áhrif á framtíð nafnlausra spjallborða á Netinu. Að þeirra mati gengur það ekki að ósvífið fólk í skjóli nafnleyndar noti Netið til að skaða einstaklinga með rógburði og hótunum. Ljóst er að ekki verður auðvelt að afhjúpa hina nafnlausu notendur. Lögmenn kvennanna tveggja hafa nú þegar stefnt netþjónustufyrirtækinu og umsjónarmönnum spjallborðsins og krafist þess að fá allar þær upplýsingar sem gætu leitt í ljós nöfn þeirra sem standa á bak við hótanirnar.
Mest lesið Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Innlent Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Innlent Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Innlent Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Innlent Boðar þungar árásir og hernám Kharg-eyju Erlent Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Innlent Rússnesk gervitungl trufla GPS-merki í Evrópu Erlent Flekahreyfingar innan Samfylkingar Innlent Eiginmaðurinn fékk krabbameinið sem hún hræddist mest Innlent Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Innlent Fleiri fréttir Gera úkraínsk ungmenni að launmorðingjum Boðar þungar árásir og hernám Kharg-eyju Varnarmálaráðherra Breta segir af sér Telja 200.000 hafa látið lífið af völdum hita í Evrópu Hætta við að lækka sakhæfisaldur í þrettán ár Tvær vikur á braut um jörðu og síðan til tunglsins Rússnesk gervitungl trufla GPS-merki í Evrópu Áframhald á árásum og Íranir segja sundið lokað allri umferð Óútskýrðir rauðir blettir á myndum taldir svarthol Ræða „endurskipulagningu“ herstöðva í Sýrlandi Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Rufu hljóðmúrinn í fyrsta sinn en mæla hávaðann seinna Marius sleppur ekki eftir allt saman Ætla að sækja óeirðaseggi í Belfast til saka Ísland friðsælasta land heims nítjánda árið í röð Tólf látnir og níu særðir eftir skotárás í Jóhannesarborg Óeirðir í Belfast eftir hnífstungu Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Bandaríkjamenn ráðast á Íran Segir Írani hafa skotið niður þyrlu Bandaríkjanna Stríðið gegn holdétandi flugunni fær nýtt líf Kristersson í kröppum dansi á kosningaári Virðist bjartsýnn á að gæfan sé að snúast Úkraínumönnum í hag Armenar horfa áfram til vesturs eftir kosningar Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Marius látinn laus Xi í heimsókn hjá Kim: Í keppni við Pútín um áhrif í Pyongyang Báðir segjast hættir, í bili Sjá meira