Game Tíví – 1. þáttur

Þeir Ólafur Þór Jóelsson og Sverrir Bergmann snúa nú aftur á fornar slóðir. Þátturinn þeirra sívinsæli Game Tíví er kominn á Popptíví, þar sem hann hóf göngu sína upphaflega.

Þeir félagar munu að vanda fara yfir allt það nýjasta á sviði tölvuleikja og þetta er því þáttur sem enginn tölvuleikjaunnandi má missa af. Í þessum fysta þætti gagnrýna Óli og Sverrir leikina Sleeping Dogs og Darksiders 2, þeir heimsækja og dæma 7D bíóið í Skemmtigarðinum, skoða skemmtilegan leik á iPad, birta nýjan topplista yfir 5 verstu ofurhetjuleiki allra tíma ásamt því að skoða Borderlands 2, Call of Duty: Black Ops 2, Far Cry 3, Counter-Strike: Global Offensive, Guild Wars 2, Remember Me og fleira. Game Tíví er á dagskrá Popptíví á fimmtudagskvöld klukkan 19.50.

13113
24:57

Vinsælt í flokknum Game Tíví