Látin eftir björgun úr móðurkviði
Fyrirburi, sem kom í heiminn með bráðakeisara eftir að móðirin fórst í loftárás Ísraelsmanna á Gasa, lést í gær. Ráðist var á heimili fjölskyldunnar í borginni Rafah síðasta laugardag. Foreldrar litlu stúlkunnar og fjögurra ára systir hennar létust öll en læknar náðu að bjarga stúlkunni úr móðurkviði.