Justin Shouse fór alblóðugur af velli í Þorlákshöfn | Myndband Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. febrúar 2016 20:12 Justin Shouse með alblóðuga höndina.
Justin Shouse, leikstjórnandi Stjörnunnar og stoðsendingahæsti leikmaðurinn í sögu úrvalsdeildar karla í körfubolta, meiddist illa á hendi í leik Þórs og Stjörnunnar í Þorlákshöfn í kvöld. Atvikið gerðist í lok fyrsta leikhluta þegar Justin lenti á auglýsingaskilti við hlið vallarins. Hann fékk stóran skurð á hendi og spilar varla meira í kvöld. Það fossblæddi strax úr hægri hendinni á Justin og samkvæmt heimildum Vísis þá er hann á leið á sjúkrahús til að láta huga að skurðinum. Justin meiddist á hægri hendi en með henni hefur hann gefið flestar stoðsendingar í sögu úrvalsdeildar karla. Justin bætti met Jóns Arnars Ingvarssonar á föstudagskvöldið. Þetta er mikið áfall fyrir Stjörnuliðið sem er líka að spila án Marvins Valdimarssonar. Leikur Þórs og Stjörnunnar er enn í fullum gangi og það má fylgjast með gangi mála í beinni textalýsingu á Vísi. Það er hægt að sjá atvikið í myndbandinu hér fyrir neðan.Justin fær slæman skurð í Þorlákshöfn Shouse datt á auglýsingaskilti og skarst illa á hendi. Virtist blæða frekar mikið. #dominos365 pic.twitter.com/CGXUhMPTzz— Arnar Þór Ingólfsson (@arnaringolfs) February 7, 2016
Dominos-deild karla Mest lesið Maður dagsins á HM: Af hverju fór Messi að gráta og átti að reka hann út af? Fótbolti Allt í bál og brand í Formúlu 1 Formúla 1 Tárvotur Messi jafnaði HM markametið með þrennu Fótbolti Zlatan nóg boðið: „Fáfróðir munu kalla þetta hroka“ Fótbolti „Ísland ætti ekki að eiga kylfing sem spilar svona vel“ Golf Allt sem þú þarft að vita: Ráshópur og rástími Gunnlaugs á U.S. Open Golf Haaland í ham er Noregur hóf HM á sigri Fótbolti Efast um Frey og segir hann hvorki fyrsta, annan né þriðja kost Fótbolti Kristófer og Guðrún eignuðust son Körfubolti Freyr ráðinn þjálfari Rosenborg Fótbolti Fleiri fréttir Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Ásta Júlía kveður Val Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Hermaðurinn Haukur í Stólana Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Sjá meira