Enski boltinn

Jurgen Klopp stendur þétt við bakið á Sturridge

Stefán Árni Pálsson skrifar
Jürgen Klopp, stjóri Liverpool.
Jürgen Klopp, stjóri Liverpool. vísir/getty
Jurgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, segist standa þétt við bakið á framherja liðsins Daniel Sturridge sem hefur ekki fundið sig á þessu tímabili og eins og svo oft áður ekki fengið margar mínútur.

Sturridge hefur ekki enn náð að skora í þeim sjö leikjum sem hann hefur komið við sögu í í ensku úrvalsdeildinni. Hann hefur skorað eitt mark á tímabilinu í bikarnum gegn Burton Albion.

„Þetta er mjög góður tímapunktur fyrir hann til að koma sér í gang, það verður ekki auðvelt en hann getur vel komið sér á skrið,“ segir Klopp í samtali við Sky Sports.

„Hann þarf bara að skora eitt mark og þá er ég viss um að hann detti í gang.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×