Jón Steinar stefnir Þorvaldi Gylfasyni Jón Hákon Halldórsson skrifar 30. maí 2012 08:49 Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttardómari.
Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttardómari hefur ákveðið að stefna Þorvaldi Gylfasyni prófessor fyrir dómstóla vegna greinar sem Þorvaldur skrifaði í ritröð háskólans í Munchen í Þýskalandi og birt var í mars slíðastliðnum. Jón Steinar greinir frá þessu í aðsendri grein sem birtist í Morgunblaðinu í dag. Í greininni segir Jón Steinar að Þorvaldur hafi verið með aðdróttun í sinn garð, um að hann hafi misfarið með vald sitt sem dómari við Hæstarétt með því að semja fyrst með leynd kæruskjal til réttarins og stjórna síðan afgreiðslu þess. Þar á Þorvaldur við kæru vegna framkvæmdar kosninga til stjórnlagaþings árið 2010. „Framferðið sem dylgjað er um að ég hafi viðhaft er áreiðanlega refsivert og hlyti ef satt reyndist að varða embættismissi. Hér má raunar einnig greina dylgjur sem beinast að hinum dómurunum því þeir eru sagðir hafa notað „átyllu" (pretext) til að komast að niðurstöðu,“ segir Jón Steinar í greininni. Jón Steinar segir jafnframt að sterk rök standi til þess að láta ekki skrifum Þorvalds ósvarað. „Sé það gert er hætt við að skrifarar muni fyllast sjálfumgleði og telja að þeir muni framvegis komast óáreittir upp með ærumeiðingar sínar og þá meðal annars brigsl um að dómarar misbeiti valdi sínu vísvitandi til að skaða menn,“ segir Jón Steinar í greininni.
Mest lesið Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Innlent Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Innlent „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Innlent „Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“ Erlent Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Innlent Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Innlent Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Innlent Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Innlent Bein útsending: Brautskráning Háskóla Íslands Innlent Tveir látnir eftir að bíl var ekið í hlið húss Erlent Fleiri fréttir Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Hægt að skoða þyrlur og sprengjuleitarbúnað Gæslunnar Viðgerð Herjólfs dregst um þrjár vikur: „Vonum að þetta fari nú að verða búið“ Tilgangslaust stríð og æfir hjólabúar „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Bein útsending: Brautskráning Háskóla Íslands Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Ríkisstjórnin ýmist bensínlaus bátur eða á leikskóla í platheimi Friðarsamkomulag, rauð ljós á Sæbraut og ógeðfelldar lýsingar í dómsal Njósnarar enn í lögsögunni Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt „Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Hittust átta sinnum til að úrskurða um risaeðlubeinin Bólar ekkert á ályktun ungra miðflokksmanna Kviknaði í raftæki Samgönguáætlun samþykkt á Alþingi Staðfesta synjun SÍ: „Þetta er ekki bara fyrir Jón Atla“ Eigi von á tæplega 200 þúsund gestum Nýsamþykktum samningi hjólhýsabyggðarinnar sagt upp Eldur kviknaði í Toppstöðinni „Við getum alveg fullyrt það að sumarið sé komið“ Skilyrðin til þess fallin að „drepa samfélagið“ Stungu dóttur sína í hjartað: „Hún var mjög hugrökk“ Faðir sýknaður af því sem eftir stóð af ásökunum dóttur Samkomulag um þinglok og blíða í borginni Borgin afþakkar risaeðlubein Sjá meira