Menning

Jón Kalman orðaður við Nóbelsverðlaunin: „Um það bil tólf þúsund höfundar á undan mér“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Halldór Laxness hlaut Nóbelsverðlaun í bókmenntum árið 1955.
Halldór Laxness hlaut Nóbelsverðlaun í bókmenntum árið 1955.
„Ég get ekki sagt að ég sé spenntur eftir því að þetta verði tilkynnt,“ segir Jón Kalman Stefánsson, rithöfundur, léttur í bragði en í gær birti RÚV frétt þess efnis að höfundurinn væri orðaður við Nóbelsverðlaunin í bókmenntum.

Í blaðinu Cronache del Garantista kom nafn hans við sögu í tengslum við verðlaunin en þríleikur Jóns Himnaríki og helvíti, Harmur englanna og Hjarta mannsins hefur verið þýddur á ítölsku og fengið góðar viðtökur þar í landi.

„Maður er auðvitað bara alltaf spenntur yfir því hvaða höfundur hreppir verðlaunin en það eru svona um það bil tólf þúsund höfundar á undan mér í röðinni. Ég er algjörlega rólegur, “ segir Jón og hlær sig máttlausan.

Jón segir að fólk í kringum hann hafi haft gaman af þessu og rætt töluvert við hann um möguleikana.

„Maður tekur þessu ekki alvarlega. Það hefur gengið vel hjá mér á Ítalíu og þeir hafa fundið eitthvað við þessar bækur en ætli þetta sé ekki bara útaf því að ég hef svo góðan þýðanda,“ segir Jón sem ætlar nú ekki að fylgjast með beinni útsendingu þegar verðlaunahafinn verður kynntur til sögunnar.

Hér má fylgjast með þeirri útsendingu og hefst hún klukkan 10.30.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×