Innlent

Jón Gnarr heillar netverja

Jón í undirbúningi fyrir Gleðigönguna.
Jón í undirbúningi fyrir Gleðigönguna. mynd/Instagram/Heiða Kristín Helgadóttir
Jón Gnarr fer nú mikinn í netheimum. Mynd sem sýnir borgarstjóra Reykjavíkur undirbúa sig fyrir Gleðigönguna hefur vakið mikla athygli meðal netverja. Á myndinni er Jón klæddur í brjóstahaldara og sokkabuxur. Hann brosir síðan í myndavélina hrókur alls fagnaðar.

Myndin birtist á samfélagsmiðlinum Instagram en það var Heiða Kristín Helgadóttir, varaformaður Besta flokksins, sem birti myndina.

Það er síðan vert að benda á að myndin er nú þriðji vinsælasti hlekkurinn á vefsíðunni Reddit en hún er ein vinsælasta vefsíða veraldar.

Hægt er að nálgast umræðu um myndina með því fylgja hlekkinum hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×