Jón Gnarr borgarstjóri Reykjavíkur 15. júní 2010 14:17 Jón Gnarr, nýkjörinn borgarstjóri.
Jón Gnarr, oddviti Besta flokksins, hefur verið kosinn borgarstjóri Reykjavíkur á fundi Borgarstjórnar Reykjavíkur sem hófst klukkan tvö í dag. Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, var kosin forseti borgarstjórnar og Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna, var kosin fyrsti varaforseti borgarstjórnar. Björk Vilhelmsdóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, var kosin annar varaforseti borgarstjórnar. Í kjölfarið var eftirfarandi bókun samþykkt einróma af fulltrúum allra flokka: „Besti flokkurinn og Samfylkingin hafa gert með sér málefnasamning og þar með myndað meirihluta í borgarstjórn. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og VG eiga enga aðild að þeim meirihluta eða málefnasamningi. Vilji er hins vegar fyrir því hjá nýkjörinni borgarstjórn að auka samvinnu milli flokka og nýta krafta allra borgarfulltrúa í samræmi við vinnubrögð fráfarandi borgarstjórnar. Í staðinn fyrir hefðbundna kosningu á milli lista meirihluta og lista minnihluta í ráð og nefndir hafa borgarfulltrúar náð samkomulagi um að bera fram eina tillögu að nefndarskipan til að ná fram auknu jafnvægi milli flokka í nefndum og ráðum borgarinnar. Fulltrúar meirihlutans munu fara með formennsku í fagráðum en formennska í hverfisráðum og starfshópum mun skiptast milli flokka. Aðgerðarhópur borgarstjórnar í efnahags- og atvinnumálum, sem skipaður var á síðasta kjörtímabili, mun halda áfram sínum störfum og munu oddvitar allra framboða taka þátt í því starfi. Að auki mun forysta ákveðinna verkefna og embætta vera óháð því hverjir eiga aðild að meirihlutanum. Þannig munu fulltrúar Sjálfstæðisflokks og VG taka að sér embætti forseta og fyrsta varaforseta borgarstjórnar og leiða ákveðna starfshópa um ýmis mikilvæg hagsmunamál sem borgarstjórn telur brýnt að unnið verði að í samstarfi allra flokka eins og atvinnumálahóp, sem starfaði á síðasta kjörtímabili. Þetta fyrirkomulag er ákveðið til eins árs í senn. Það er von allrar borgarstjórnar að þau skref sem hér eru stigin til áframhaldandi samvinnu allra borgarfulltrúa á vettvangi borgarstjórnar verði til heilla fyrir borgina og borgarbúa."
Tengdar fréttir Hanna Birna kosin forseti borgarstjórnar Hanna Birna Kristjánsdóttir var kosin forseti borgarstjórnar á fundi Borgarstjórnar Reykjavíkur rétt í þessu. Allir borgarfulltrúar kusu hana, alls 15 15. júní 2010 14:08 Sóley kosin fyrsti varaforseti borgarstjórnar Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna, var kosin fyrsti varaforseti borgarstjórnar á fundi Borgarstjórnar Reykjavíkur rétt í þessu. Allir borgarfulltrúar Reykjavíkur kusu hana, alls 15. 15. júní 2010 14:15 Hanna Birna verður forseti borgarstjórnar Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur Hanna Birna Kristjánsdóttir, fráfarandi borgarstjóri og oddviti Sjálfstæðisflokksins, ákveðið að taka boði Besta flokksins og Samfylkingarinnar um að gerast forseti borgarstjórnar. Sömu heimildir herma að Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi VG, verði fyrsti varaforseti borgarstjórnar. Ekki liggur fyrir hver aðkoma Sjálfstæðisflokksins og Vinstri grænna verður að öðru leyti að stjórn borgarinnar og hvort að flokkarnir muni til að mynda stýra einhverjum nefndum. 15. júní 2010 09:41 Mest lesið Silja sagði spurningu Einars fáránlega: „Það þýðir ekki að bendla okkur við þetta“ Innlent Kona bankaði upp á en inn ruddust tveir menn Innlent Kosningaspá Vísis: Stöðugleiki að komast á fylgi í borginni Innlent „Skorri Mánasson“ sagður þjást af „source amnesia“ Innlent Svona voru kappræður oddvitanna á Sýn Innlent „Miðflokkurinn er ekki að sparka í neina krakka“ Innlent Íris Helga neitar sök Innlent Sjálfstæðisflokkurinn stærstur og fylgi Miðflokks eykst á ný Innlent „Kristinn, þú ert bara fastur í rörsýn“ Innlent Flugvöllur er ekki bara upp á punt Innlent Fleiri fréttir Heldur að Kristrún muni banna Björgu að líta til hægri Teknar úr umferð fyrr en til stóð Kona bankaði upp á en inn ruddust tveir menn Kosningaspá Vísis: Stöðugleiki að komast á fylgi í borginni Flugvöllur er ekki bara upp á punt Silja sagði spurningu Einars fáránlega: „Það þýðir ekki að bendla okkur við þetta“ Grunaður um líkamsárás og rán Listamannalaunakerfi í Reykjavík og róló með karakterum Guðrúnar Helgudóttur „Kristinn, þú ert bara fastur í rörsýn“ „Miðflokkurinn er ekki að sparka í neina krakka“ Tekist á um framkvæmdir við nýjan miðbæ í Hamraborg Sjálfstæðisflokkurinn stærstur og fylgi Miðflokks eykst á ný Kjósendur vilja helst þessa flokka í samstarf Rýnt í nýja könnun Svona voru kappræður oddvitanna á Sýn Kerfisvilla leiðrétt og spýtukofinn fær að standa Árasin einkenndist af talsverðri heift Segir Kristrúnu dreifa ósannindum um Sjálfstæðisflokkinn Tálbeitan sakfelld en aðrir dómar í Gufunesmáli mildaðir Hjólalest í skólann: Hundrað manns og hundur mættu í „hjólastrætó“ á Kársnesinu Lækka ráðgjöf um hrefnuveiðar vegna villu í útreikningi Grunaður um ítrekuð brot gegn fósturbarni „Skorri Mánasson“ sagður þjást af „source amnesia“ Íris Helga neitar sök Tveir bankar spá stýrivaxtahækkun þrátt fyrir kólnun hagkerfis Intuens lagði landlækni „Mikilvægt að sjá til þess að það líði ekki yfir neinn“ Gæsluvarðhald framlengt í Dettifoss-málinu Lausatök gagnrýnd í Grindavíkurskýrslu og bankarnir spá vaxtahækkun Ákvarðanir um aðgengi að Grindavík lausar í reipunum Sjá meira
Hanna Birna kosin forseti borgarstjórnar Hanna Birna Kristjánsdóttir var kosin forseti borgarstjórnar á fundi Borgarstjórnar Reykjavíkur rétt í þessu. Allir borgarfulltrúar kusu hana, alls 15 15. júní 2010 14:08
Sóley kosin fyrsti varaforseti borgarstjórnar Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna, var kosin fyrsti varaforseti borgarstjórnar á fundi Borgarstjórnar Reykjavíkur rétt í þessu. Allir borgarfulltrúar Reykjavíkur kusu hana, alls 15. 15. júní 2010 14:15
Hanna Birna verður forseti borgarstjórnar Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur Hanna Birna Kristjánsdóttir, fráfarandi borgarstjóri og oddviti Sjálfstæðisflokksins, ákveðið að taka boði Besta flokksins og Samfylkingarinnar um að gerast forseti borgarstjórnar. Sömu heimildir herma að Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi VG, verði fyrsti varaforseti borgarstjórnar. Ekki liggur fyrir hver aðkoma Sjálfstæðisflokksins og Vinstri grænna verður að öðru leyti að stjórn borgarinnar og hvort að flokkarnir muni til að mynda stýra einhverjum nefndum. 15. júní 2010 09:41