Körfubolti

Jón Arnór og Unicaja í efsta sætið

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
vísir/getty
Unicaja fór á topp spænsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta í kvöld þegar liðið lagði Movistar Estudiantes 66-62 á heimavelli í hörku leik.

Unicaja var 34-30 yfir í hálfleik og var leikurinn í járnum frá upphafi til enda og skiptust liðin á að leiða í leiknum.

Unicaja tryggði sér sigurinn á tveimur síðustu mínútum leiksins með góðum varnarleik.

Jón Arnór Stefánsson skoraði sex stig fyrir Unicaja sem hefur unnið 11 af 13 leikjum sínum á leiktíðinni. Real Madrid er í öðru sæti með 10 sigra í 12 leikjum. Real Madrid getur náð Unicaja að stigum á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×