Körfubolti

Jón Arnór og félagar fengu skell

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Jón Arnór í landsleik.
Jón Arnór í landsleik. vísir/daníel
Valencia, lið Jóns Arnórs Stefánssonar, fékk á baukinn gegn Real Madrid í kvöld er undanúrslitin í spænska boltanum hófust.

Leikurinn var spennandi framan af en Real stakk af í síðari hálfleik og vann sannfærandi sigur, 82-57.

Jón Arnór spilaði í tæpar níu mínútur fyrir Valencia í kvöld. Hann tók tvö þriggja stiga skot sem fóru ekki niður. Hann gaf eina stoðsendingu.

Staðan í einvígi liðanna 1-0 fyrir Real en Valencia fær tækifæri til að svara fljótlega.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×