Körfubolti

Jón Arnór kom Pavel á óvart í kvöld: Þvílík frammistaða

Óskar Ófeigur Jónsson í London skrifar
Pavel Ermolinskij gegn Bretum í Höllinni.
Pavel Ermolinskij gegn Bretum í Höllinni. vísir/vilhelm
„Þetta var alveg gjeggað," sagði PavelErmolinskij, leikstjórnandi íslenska körfuboltalandsliðsins eftir sigurinn á Bretum í Koparkassanum í London í kvöld.

„Það var dauft yfir okkur í fyrri hálfleik á meðan að þeir byrjuðu sterkt. Í byrjun seinni hálfleiks fann ég kraftinn síast úr þeim og koma yfir í okkur. Það var tilfinningin sem ég hafði. Það var líka miklu sætara að vinna leikinn svona," sagði Pavel um endurkomu liðsins í seinni hálfleiknum.

„Litla þjóðin sem við erum og alltaf er talað niður til. Við höfðum kjarkinn til að segja að við getum þetta. Það var það sem gerðist í seinni hálfleikum í kvöld. Við höfðum trú á þessu og það er eitthvað sem hefur hægt og rólega verið að breytast hjá okkur," sagði Pavel.

„Það var mjög mikilvægt að Hössi skoraði þessi stig þar sem aðrir sem hafa verið að skora voru ekki að gera það í þessum leik. Hössi var agressívur og að klára mjög vel," sagði Pavel um frammistöðu Harðar Axels og hann segir Jón Arnór hafa komið sér á óvart í þessum leik.

„Ég skal vera hreinskilinn og segja það bara að ég bjóst ekki við að Jón Arnór myndi gera þetta. Hann er ekki búinn að vera spila með okkur og er búinn að æfa lítið. É hélt að við værum bara að fá einhvern gamlingja þarna inn," sagði Pavel í léttum tón en bætti svo við.

„Hann var eins og unglamb og þvílík frammistaða hjá honum. Þegar við þurftum körfur þá kom hann með þær. Leiðtogar eins og hann eiga að gera það og hann hefur gert það trekk í trekk fyrir þetta lið en aldrei í jafnmikilvægum leik og þessum. Það var gott að hann klikkaði ekki í dag," sagði Pavel.

„Ég er ekki bara stoltur af sjálfu afrekinu heldur er ég helst stoltur af því að fá að spila með þessum strákum. Maður horfir bara í kringum sig og það eina sem kemst að er að vinna," sagði Pavel.

„Það er enginn að hugsa um eigin hagsmuni því menn vilja bara vinna. Menn eru líka að tilbúnir að fórna hverju sem er fyrir það. Ég er því stoltastur yfir því að fá tækifæri til að spila með jafngóðum mönnum, ekki bara körfuboltamönnum heldur góðum manneskjum eins og þessir strákar eru," sagði Pavel að lokum.


Tengdar fréttir

Leik lokið: Bretland - Ísland 69-71 | Strákarnir eru á leiðinni á EM

Íslenska körfuboltalandsliðið er á leiðinni á EM eftir frábæran 71-69 endurkomusigur á Bretum í Koparkassanum í London í kvöld. Íslenska liðið var tíu stigum undir í hálfleik en gafst ekki upp og tryggði sér sigurinn með stórkostlegum seinni hálfleik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×