Körfubolti

Jón Arnór gerði tveggja ára samning við KR

Stefán Árni Pálsson skrifar
Frá blaðamannafundinum í dag.
Frá blaðamannafundinum í dag. vísir/kak
Jón Arnór Stefánsson, landsliðsmaður í körfubolta, skrifaði í dag undir tveggja ára samning við körfuknattleiksdeild KR en íþróttadeild 365 hafði greint frá því í dag að Jón myndi skrifa undir við uppeldisfélagið.

Frá þessu var greint á blaðamannafundi í DHL-höllinni í dag. Jón er uppalinn hjá KR og spilaði með liðinu tímabilið 2008-9 sem er eina tímabilið hans hér á landi eftir að hann hélt fyrst út í atvinnumennsku árið 2002. Hann var valinn íþróttamaður ársins árið 2014 og er um mikinn hvalreka að ræða fyrir íslenskan körfubolta að fá þennan leikmann heim.

Jón Arnór er núna að undirbúa sig fyrir undankeppni EM 2017 með íslenska landsliðinu og byrjar því næst að æfa á fullu með KR-ingum.. Jón Arnór var töluvert orðaður við Stjörnuna og Grindavík í sumar en Vesturbærinn er áfangastaðurinn.

KR-ingar unnu þriðja Íslandsmeistaratitilinn í röð á síðasta tímabili og hefur liðið verið óstöðvandi undanfarin ár.


Tengdar fréttir

Lít stoltur og glaður til baka yfir ferilinn

Jón Arnór Stefánsson hefur ákveðið að koma heim til Íslands og spila í Domino's-deildinni í vetur. Hann hefur þó ekki tekið ákvörðun um með hvaða liði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×