Körfubolti

Jókerinn í NBA er ekkert grín

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Nikola Jokic.
Nikola Jokic. Vísir/Getty
Serbinn Nikola Jokic hefur vakið mikla athygli fyrir frammistöðu sína í NBA-deildinni á fyrstu sex vikum ársins 2017.

Jokic hefur fengið fleiri mínútur í fyrstu sautján leikjum Denver Nuggets á árinu 2917 og er að skila frábærum tölum í þeim.

Nikola Jokic var með glæsilega þrennu í sigri á Golden State Warriors í nótt, skoraði 17 stig, tók 21 frákast og gaf 12 stoðsendingar. Þetta var hans önnur þrenna á tímabilinu og báðar hafa komið í febrúar.

Frá fyrsta degi ársins er hann með 22,7 stig, 11,0 fráköst og 5,5 stoðsendingar að meðaltali og í leikjunum er hann að hitta úr 59 prósent skota sinna utan af velli og 86 prósent vítanna.

Í raun er Nikola Jokic aðeins einn af þremur leikmönnum NBA-deildarinnar sem eru með að minnsta kosti 20 stig, 10 fráköst og 5 stoðsendingar að meðaltali síðan 1. janúar. Hinir eru Russell Westbrook og DeMarcus Cousins.

Febrúar hefur verið viðburðarríkur. Hann náði sinni fyrstu þrennu 3. febrúar þegar hann var með 20 stig, 13 fráköst og 11 stoðsendingar á móti Milwaukee Bucks.

Hann skoraði síðan 40 stig á móti New York Knicks í Madison Sqaure Garden og fylgdi því síðan eftir með að skorað 27 stig, 13 fráköst og 4 stoðsendingar á útivelli á móti NBA-meisturum Cleveland Cavaliers.

Það sem er einna mest spennandi við frammistöðu Nikola Jokic að hann á enn eftir að halda upp á 22 ára afmælið sitt og framtíðin er svo sannarlega hans.

Nikola Jokic er 208 sentímetrar á hæð og fæddur í febrúar 1995. Denver Nuggets valdi hann númer 41. í nýliðavalinu 2014 en hann kom ekki til liðsins fyrr en sumarið 2015. Þetta er því annað tímabil hans með Denver.

Hann heillar líka marga með því hvernig hann spilar leikinn enda sannur liðsmaður. Þegar hann var sem dæmi spurður hvort honum fyndist skemmtilegra að skora eða gefa stoðsendingu svaraði hann: „Með því að gefa boltann verða tveir ánægðir en aðeins einn þegar ég skora sjálfur,“ sagði Nikola Jokic.







NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×