Sport

Jóhann byrjaður að undirbúa sig á Ítalíu

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jóhann hefur keppni á fimmtudaginn.
Jóhann hefur keppni á fimmtudaginn. mynd/íf
Skíðamaðurinn Jóhann Þór Hólmgrímsson er mættur til Tarvisio á Ítalíu þar sem Heimsmeistaramót IPC í skíðaíþróttum fatlaðra fer fram næstu daga.

Jóhann er nýkominn til Ítalíu en þar á undan varði hann nokkrum dögum í Noregi við æfingar fyrir mótið.

Opnunarhátíð mótsins fór fram í gær og hefur Jóhann keppni þann 26. janúar næstkomandi í Super-G í sitjandi flokki.

Keppninni lýkur svo 31. janúar næstkomandi en alls keppir Jóhann í fjórum greinum og má sjá keppnisdagskrá hans hér að neðan.

26. janúar - Super-G sitjandi flokkur

28. janúar - Super Combined - sitjandi flokkur

30. janúar - Svig - sitjandi flokkur

31. janúar - stórsvig - sitjandi flokkur

Keppnisdagskrá mótsins og úrslit má sjá með því að smella hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×