Enski boltinn

Jelavic endurnýjar kynnin við Bilic

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jelavic hefur skorað sex mörk í 36 landsleikjum fyrir Króatíu.
Jelavic hefur skorað sex mörk í 36 landsleikjum fyrir Króatíu. vísir/afp
Hull City hefur samþykkt tilboð West Ham United í króatíska framherjann Nikica Jelavic.

Talið er að West Ham muni borga þrjár milljónir punda fyrir Jelavic sem þekkir vel til Slavens Bilic, knattspyrnustjóra Hamranna, en framherjinn lék undir hans stjórn í króatíska landsliðinu.

Jelavic hefur leikið á Englandi síðan 2012, fyrst með Everton og svo með Hull. Hann skoraði átta mörk í 26 leikjum fyrir Hull á síðasta tímabili þegar liðið féll úr ensku úrvalsdeildinni. Alls gerði hann 13 mörk í 50 leikjum fyrir Hull.

West Ham hefur byrjað tímabilið ágætlega en um helgina vann liðið góðan 0-3 sigur á Liverpool á Anfield.

Lærisveinar Bilic eru í 8. sæti deildarinnar með sex stig eftir fjórar umferðir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×