Bíó og sjónvarp

Jared Leto óhugnanlegur Jóker

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Jared Leto leikur Jókerinn í myndinni Suicide Squad.
Jared Leto leikur Jókerinn í myndinni Suicide Squad.
Fyrsta stiklan fyrir kvikmyndina Suicide Squad var birt í dag en brot úr myndinni sem sýnt var á Comic Con-ráðstefnunni um helgina hafði áður verið lekið á netið. Leikstjórinn, David Ayer, ákvað því að birta stikluna fyrr en áætlað hafði verið.

Suicide Squad er lið af illmennum úr myndasögum DC Comics en Jókerinn, kafteinn Boomerang og Deadshot eru meðal annars í liðinu.

Jared Leto fer með hlutverk Jókersins í myndinni og hefur hann vakið mikla athygli síðan stiklan birtist í dag en hana má sjá hér að neðan.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×