Körfubolti

Jakob og félagar enn á lífi

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Jakob í leik með Borås.
Jakob í leik með Borås. mynd/borås
Jakob Örn Sigurðarson og félagar í Borås Basket eygja enn von um að komast í úrslitrimmuna í sænska körfuboltanum.

Þeir unnu góðan sigur, 81-68, á Södertalje Kings í þriðja leik liðanna í kvöld. Staðan í rimmu liðanna er 2-1 fyrir Södertalje.

Jakob Örn átti mjög góðan leik enn og aftur fyrir sitt lið.

Hann skoraði 13 stig, tók 6 fráköst og gaf þrjár stoðsendingar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×