Íslenski boltinn

Jafnt hjá Val og ÍBV í frábærum leik | Úrslit í Pepsi-deild kvenna

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar

Valur og ÍBV skildu jöfn 3-3 í bráðfjögurum leik í Pepsí deild kvenna í dag í beinni útsendingu hér á Vísi. Bæði lið fengu urmul færa og hefðu mörkin hæglega getað orðið fleiri.

Þórhildur Ólafsdóttir skoraði fyrsta markið fyrir ÍBV eftir rétt rúmlega níu mínútna leik en ÍBV hóf leikinn af miklum krafti.

Elín Metta Jensen jafnaði metin aðeins níu mínútum síðar úr vítaspyrnu af fádæma öryggi.

Valur komst yfir á 24. mínútu þegar Svava Rós Guðmundsdóttir skoraði eftir góða sókn og Valur því 2-1 yfir í hálfleik.

ÍBV fékk vítaspyrnu strax á annarri mínútu seinni hálfleiks en Bryndís Jóhannesdóttir skaut í slána.

ÍBV byrjaði seinni hálfleikinn mjög vel og fékk nokkur mjög góð færi en Þórdís María Aikman fór á kostum í marki Vals.

Líkt og í fyrri hálfleik komst Valur betur inn í leikinn er leið á hálfleikinn og fékk ekki síðri færi en ÍBV en boltinn virtist ekki vilja inn fyrr en Elín Metta Jensen komst í færi á 59. mínútu.

Bryndís Jóhannesdóttir hleypti spennu í leikinn aftur með skallamarki á 67. mínútu en boltinn skoppaði tvisvar á slánni í aðdragandanum.

Eyjastelpur gerðu hvað þær gátu að jafna metin og eftir nokkru mislukkuð góð færi tókst Vesnu Smiljkovic að jafna metin á 89. mínútu með glæsilegum marki beint úr aukaspyrnu. Jafntefli var því staðreynd í frábærum leik.

Öruggt hjá Stjörnunni

Tveir aðrir leikir voru leiknir á sama tíma í Pepsí deild kvenna. Stjarnan skellti FH 7-0 á heimavelli og Selfoss og Afturelding gerðu markalaust jafntefli.

Írunn Þorbjörg Aradóttir skoraði fyrsta markið í Garðabæ á 25. mínútu. Fjórum mínútum síðar bætti Danka Podovac við öðru marki. Podovak var aftur á ferðinni rétt fyrir hálfleik og staðan 3-0 í hálfleik.

Soffía Arnþrúður Gunnarsdóttir skoraði fjórða markið á 56. mínútu og Rúna Sif Stefánsdóttir bætti því fimmta við fimm mínútum fyrir leikslok.

Tveimur mínútum síðar skoraði Harpa Þorsteinsdóttir sjötta markið og Danka fullkomnaði þrennuna á þriðju mínútu uppbótartíma og Stjarnan er á toppi deildarinnar með fullt hús stiga líkt og Breiðablik.

Markaskorarar úr Garðabæ eru fengnir af urslit.net.

Leikskýrslan af ksí.is



Fleiri fréttir

Sjá meira


×