Körfubolti

Jackson hefur ekki heyrt í Melo í nokkra daga

Jackson er eflaust á taugum yfir því hvort hann missi sinn aðalmann.
Jackson er eflaust á taugum yfir því hvort hann missi sinn aðalmann. vísir/getty
Það er enn óvissa hvað stjörnuleikmaðurinn Carmelo Anthony gerir í sumar en hann gæti verið á förum frá NY Knicks.

Forseti Knicks, Phil Jackson, segist ekkert hafa heyrt frá Anthony síðustu daga en er engu að síður bjartsýnn á að hann verði áfram hjá félaginu.

"Ég átti virkilega gott spjall við hann síðast er við töluðum saman. Við náðum vel saman og ég tel að við skiljum báðir hvað þarf til að ná árangri hérna," sagði Jackson.

"Hann þarf að vera þolinmóður og til í að leiða þetta félag áfram. Það tekur tíma að búa til meistaraliði en við eigum að geta verið mikið betri á næsta ári."

Að sögn Jakcson þá er Knicks búið að gera Anthony fimm mismunandi samningstilboð. Umboðsmaður Anthony segir sinn mann enn vera að gera upp hug sinn.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×