Körfubolti

Ívar aðeins annar þjálfarinn sem fer með kvennaliðið á tvenna leika

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ívar og stelpurnar hefja leik í dag.
Ívar og stelpurnar hefja leik í dag. mynd/kkí.is
Ívar Ásgrímsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í körfubolta, er fyrsti þjálfarinn í 22 ár sem nær því að fara með kvennaliðið á tvenna Smáþjóðaleika. Stelpurnar okkar hefja leik í kvöld gegn Möltu klukkan 19.30 í Laugardalshöllinni.

Torfi Magnússon fór með konurnar á tvenna Smáþjóðaleika í upphafi tíunda áratugsins, fyrst í Andorra 1991 og svo á Möltu 1993.

Það eru liðin tíu ár síðan að Ívar fór með íslenska kvennalandsliðið á Smáþjóðaleika en það var á leikunum í Andorra árið 2005.

Sex íslenskir þjálfarar hafa farið einu sinni með konurnar á Smáþjóðaleika en Sverrir Þór Sverisson var þjálfari liðsins á síðustu Smáþjóðaleikum sem fóru fram í Lúxemborg 2013.

Þrír leikmenn fóru með Torfa Magnússyni á báða Smáþjóðaleikana í upphafi tíunda áratugsins en það voru þær Björg Hafsteinsdóttir, Guðbjörg Norðfjörð og Hafdís Helgadóttir.

Aðeins tveir leikmenn voru í liðinu hans Ívars á Smáþjóðaleikunum fyrir tíu árum en það voru þær Helena Sverrisdóttir og Bryndís Guðmundsdóttir.

Þjálfarar íslenska kvennalandsliðsins á Smáþjóðaleikum:

Ívar Ásgrímsson · 2 (2005, 2015)

Torfi Magnússon · 2 (1991, 1993)

Sverrir Þór Sverrisson    1 (2013)

Ágúst Líndal · 1 (1989)

Svali Björgvinsson · 1 (1995)

Sigurður Ingimundarson · 1 (1997)

Hjörtur Harðarson · 1 (2003)

Henning Henningsson · 1 (2009)

Næst spilar Ísland við Mónakó á fimmtudeginum 4. júní (klukkan 17.00) og svo lokaleikinn sinn á móti Lúxemborg á laugardeginum 6. júní (klukkan 13.30).




Fleiri fréttir

Sjá meira


×