Íþróttastolt 101 Reykjavíkur heldur uppskeruhátíð Stefán Þór Hjartarson skrifar 23. júní 2016 10:30 Jóhann Kristófer Stefánsson hefur spilað með Mjöðminni í heil þrjú tímabil og hann mun ásamt Sturlu Atlas og hinum meðlimum 101 Boys troða upp á Bjúddaranum í kvöld. Vísir/Hanna
Knattspyrnufélagið Mjöðmin spilar í Gulldeildinni og er „íþróttastolt 101 Reykjavíkur“. Í liðinu hefur gegnum tíðina spilað rjóminn af lista- og menningarliði miðbæjarins. Í kvöld heldur liðið upp á viðburðinn Bjúddarann á skemmtistaðnum Húrra í Naustunum, en það er ákaflega viðeigandi samastaður fyrir skemmtun skipulagða af þessu „hipstera“-liði enda þeirra helsta afdrep í miðbænum. Á Bjúddarann er sjálfsögðu opið fyrir almenning enda eru ansi margir liðsmenn Mjaðmarinnar starfandi skemmtikraftar og því tilvalið að sameina liðsskemmtunina og eitt allsherjar dansiball. Meðal þeirra listamanna sem spila eða hafa spilað með liðinu á einhverjum tímapunkti má nefna sem dæmi DJ Margeir, Arnór Dan úr Agent Fresco og Sturlu Atlas. Búningur liðsins var hannaður af engum öðrum en Guðmundi Jörundssyni.Knattspyrnufélagið Mjöðm er með einstaklega listrænt og viðeigandi skjaldarmerki.Mynd/KF Mjöðm„Bjúddarinn er í rauninni uppskeruhátíð Mjaðmarinnar. Þar er sýnt brot af því besta úr því starfi sem hefur átt sér stað hjá leikmönnunum fyrir utan við stórkostlegan árangur liðsins. Við unnum náttúrulega B-deildina í Gulldeildinni, það náttúrulega vita það allir. Við erum að sýna hina hliðina líka. Þetta er allsherjar tónlistar- og listahátíð. Þetta er í grunninn styrktarhátíð fyrir félagsgjöldum og þátttökugjöldum í knattspyrnudeildum víðsvegar um heiminn. Ég er búinn að spila þrjú tímabil með Mjöðminni. Mjöðmin hefur gegnum árin verið svona tónlistar- og listatengt fótboltalið. Mikið grasrótar-indie-dót sem hefur komið upp úr þessu fótboltaliði,“ segir Jóhann Kristófer Stefánsson. leikmaður Mjaðmarinnar og einn af 101 Boys, hljómsveitinni hans Sturlu Atlas sem mun troða upp á Bjúddaranum. Ásamt Sturlu Atlas munu koma fram Högni Egilsson, best þekktur sem Högni í Hjaltalín, Gunnar Ragnarsson sem hefur gert garðinn frægan í hljómsveitinni Grísalappalísu – en hann er sagður til alls líklegur – Hilmar Guðjónsson leikari mun kynna herlegheitin og síðan verður DJ Margeir á svæðinu til að þeyta skífum í hvert sinn sem þess þarf, en þó er líklegt að aðrir liðsmenn Mjaðmar verði tilbúnir til að stökkva á spilarana. Verðið mun vera 1.500 krónur við hurð og allur ágóðinn rennur eins og áður segir í starf liðsins sem, að minnsta kosti að sögn Jóhanns, fer fram um allan heim.
Tengdar fréttir Hallar verulega á karla í HA HA hyggst rýna nánar í þessa kynjaskiptingu og leitar nú úrræða til að jafna hlutföllin. Taka eigi þátt í rannsóknarverkefnum með styrk úr Jafnréttissjóði. 1. júlí 2016 05:00 Mest lesið Aldrei litið betur út þrátt fyrir alvarlegt slys Lífið „Það er alveg hægt að vinna rifrildið, en þá tapar sambandið“ Makamál Borðar það sem alltaf hefur verið til og léttist og léttist Lífið Ný plata frá Birgi Hákoni: „Ég er ekki lengur þessi gaur nema í tónlistinni“ Lífið Hyggjast halda breytta Söngvakeppni á næsta ári Lífið „Fimm ár af allskonar og hamingjan er enn hér“ Lífið Opna fyrstu umboðsstofuna í eigu leikara Menning Einfalt og frísklegt útlit fyrir hlaupið Lífið Tjáir sig í fyrsta sinn um bróðurmissinn Lífið Ein lausn er að liggja hlið við hlið og fróa sér Lífið Fleiri fréttir Eignaðist alvöru pungsa með alvöru pungsa Hyggjast halda breytta Söngvakeppni á næsta ári Aldrei litið betur út þrátt fyrir alvarlegt slys Einfalt og frísklegt útlit fyrir hlaupið Borðar það sem alltaf hefur verið til og léttist og léttist „Fimm ár af allskonar og hamingjan er enn hér“ Ný plata frá Birgi Hákoni: „Ég er ekki lengur þessi gaur nema í tónlistinni“ „Það er alveg hægt að vinna rifrildið en þá tapar sambandið“ Púsluðu sig inn í undanúrslit þrátt fyrir hremmingar Tjáir sig í fyrsta sinn um bróðurmissinn Fagnaði 35 árum í sólinni Best skipulagða geymsla landsins í glæsihúsi við Laugardalinn „Allir vonuðu að þetta yrði stelpa“ Mistök að eyða ekki meiri tíma með börnunum Göngutúr með umhverfissálfræðingi: „Árás inn í umhverfið“ og vannýttasta horn borgarinnar Kvaddi dramað og flutti fyrir ástina Selur slapp úr hvalskjafti Komo keppir á stærstu götubitakeppni í heimi Verslunarhjón selja glæsivillu í 108 Okkar eigið Ísland: Skelltu sér í slímuga laug Eitt stærsta bílabíó landsins fer fram um helgina „Það spurði þig enginn“ Mætt aftur til vinnu Ein lausn er að liggja hlið við hlið og fróa sér Fagurt einbýli í hjarta Vesturbæjar Ljúffengar vöfflur í nestisboxið Réði ekki við sig þegar hann hitti Lopez Ekki viss um að mamma hans hefði kosið hann Leyfir börnunum að sofa uppi í rúmi Smekklegasta fólk landsins skálaði í kaffi Sjá meira
Hallar verulega á karla í HA HA hyggst rýna nánar í þessa kynjaskiptingu og leitar nú úrræða til að jafna hlutföllin. Taka eigi þátt í rannsóknarverkefnum með styrk úr Jafnréttissjóði. 1. júlí 2016 05:00