Sport

Íslensku stelpurnar byrjuðu á stórsigri á Rúmenum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Stelpurnar byrja vel.
Stelpurnar byrja vel. Vísir/Stefán
Íslenska kvennalandsliðið í íshokkí byrjaði vel í 2. deild heimsmeistaramóts kvenna en riðill íslenska liðsins fer fram á Akureyri 27. febrúar til 5. mars 2017.

Íslenska liðið lék sinn fyrsta leik í kvöld og vann þá 7-2 sigur á Rúmenum. Nýja-Sjáland vann 5-3 sigur á Tyrklandi og Mexíkó vann 3-1 sigur á Spáni í hinum leikjum dagsins.

Silvía Rán Björgvinsdóttir skoraði tvö mörk fyrir íslenska liðið í kvöld en alls komu sex leikmenn liðsins á markalistann og aðrar fjórar  náðu að gefa stoðsendingar í leiknum.  Íslenska liðið vann alla leikhlutana eða 3-0, 1-0 og 3-2.

Íslensku stelpurnar mættu grimmar til leiks og voru komnar í 2-0 eftir aðeins sjö mínútna leik.

Flosrún Vaka Jóhannesdóttir og Sunna Björgvinsdóttir skoruðu mörkin og íslenska liðið var grimmari út um allan völl á fyrstu mínútunum. Íslensku stelpurnar voru heldur betur mættar til leiks á HM.

Silvía Rán Björgvinsdóttir bætti við þriðja markinu níu mínútum síðar og hún skoraði síðan sitt annað mark og kom Íslandi í 4-0 í öðrum leikhlutanum. Ísland vann fyrstu tvo leikhluta leiksins því 4-0.

Ísland skoraði þrjú mörk í lokaleikhlutanum en fékk einnig tvö mörk á sig. Eva María Karvelsdóttir,  Karen Þórisdóttir og Birna Baldursdóttir skoruðu mörkin.  

Birna skoraði síðasta markið eftir stoðsendingu fá Flosrúnu Vöku Jóhannesdóttur en það var einmitt Flosrún Vaka sem skoraði fyrsta mark leiksins eftir stoðsendingu frá Birnu.



Ísland - Rúmenía 7-2

Mörkin í leiknum

 

1-0 Flosrún Vaka Jóhannesdóttir (6.)

Stoðsending: Birna Baldursdóttir

2-0 Sunna Björgvinsdóttir (7.)

Stoðsending: Guðrún Marín Viðarsdóttir

3-0 Silvía Rán Björgvinsdóttir (16.)

Stoðsending: Engin

4-0 Silvía Rán Björgvinsdóttir (30.)

Stoðsending: Jónína Margrét Guðbjartsdóttir

4-1 Alina Oprea (43.)

5-1 Eva María Karvelsdóttir (45.)

Stoðsending: Jónína Margrét Guðbjartsdóttir og Kristín Ingadóttir

6-1 Karen Þórisdóttir (50.)

Stoðsending: Diljá Björgvinsdóttir

6-2 Magdolna Popescu

7-2 Birna Baldursdóttir (60.)

Stoðsending: Flosrún Vaka Jóhannesdóttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×