Körfubolti

Íslenska landsliðið sló í gegn í Berlín | „Serbneska þjóðin elskar ykkur“

Haukur Helgi Pálsson, leikmaður íslenska landsliðsins fagnar hér gegn Tyrklandi.
Haukur Helgi Pálsson, leikmaður íslenska landsliðsins fagnar hér gegn Tyrklandi. Visir/Valli
Óhætt er að segja að íslenska landsliðið í körfubolta og stuðningsmannasveit þeirra hafi slegið í gegn á Eurobasket í Berlín þrátt fyrir að íslenska liðið hafi tapað öllum leikjum sínum.

Íslenska liðið lenti í sannkölluðum dauðariðli í frumraun sinni á stórmóti í körfubolta í karlaflokki en í riðlinum mátti finna verðlaunahafa á öðrum stórmótum og NBA-stjörnur í hverju liði.

Þrátt fyrir það mátti litlu muna að Ísland hefði náð að stela sigri í leikjunum gegn Þýskalandi, Ítalíu og sérstaklega Tyrklandi þar sem Tyrkir þurftu framlengingu til þess að gera út um íslenska liðið.

Facebook-síða Alþjóða körfuboltasambandsins, FIBA, birti mynd á síðu sinni í gærkvöld þar sem úrslit kvöldsins voru staðfest og er óhætt að segja að stuðningsmenn víðsvegar úr heiminum hafi hrifist af leik íslenska liðsins en hér fyrir neðan má sjá nokkrar athugasemdir sem birtust undir myndinni.

„Ísland lenti í 6. sæti en í því fyrsta yfir þá sem voru með mesta ástríðu og baráttu, þeir börðust fyrir þjóð sinni. Öll serbneska þjóðin studdi við bakið á ykkur, við elskum ykkur. Kveðjur frá Serbíu.“

„Frábær leikur. Til hamingju Tyrkland með sigurinn og takk Ísland fyrir frábæran leik.“

„Ísland lék frábærlega í kvöld, þeir fóru með hugrekki inn í þennan leik. Litríkasta lið mótsins. Takk fyrir allt saman og gangi ykkur vel í framtíðinni. Ísland aflaði sér virðingar frá Tyrklandi.“

„Virkilega góður leikur, íslensku leikmennirnir eiga hrós skilið fyrir viðhorf sitt. Til hamingju Tyrkland og gangi ykkur vel gegn Frakklandi.“

„Takk Ísland fyrir alla frábæru tímana sem þið gáfuð okkur. Þvílík ástríða, virðing frá Ítalíu #teamRagnar.“

„Til hamingju Ísland, þeir áttu skilið sigurinn enda börðust þeir til enda leiksins.“

„Vel gert Ísland, þið eruð ekki á sama stall og Serbía en við elskum eldmóðinn ykkar.“

Turkey survive a tough OT-test from Iceland in #EuroBasket2015 Group B and advance to the Round of 16!Video highlights: https://youtu.be/OBUq9874VO8

Posted by FIBA on Thursday, September 10, 2015

Tengdar fréttir

Er körfuboltinn kominn heim?

Íslensku strákunum var fagnað sem sigurvegurum í gærkvöldi þrátt fyrir fimmta tapið í röð á Evrópumótinu í körfubolta, að þessu sinni eftir rosalegan framlengdan leik á móti Tyrkjum. Íslensku leikmennirnir og íslenska stuðningsfólkið unnu hug og hjörtu allra í Berlín með frábærri frammistöðu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×