Íslendingurinn umdeildi er stoltur af sprengjulistaverki Andri Ólafsson skrifar 3. desember 2007 14:30 Þórarinn Ingi Jónsson videolistamaður "
Ég stend við verkið og er stoltur af því," segir Þórarinn Ingi Jónsson listnemi í Kanada en verk hans "this is not a bomb" gerði allt vitlaust þar í landi í síðustu viku. Eins og frá hefur verið greint kom Þórarinn fyrir eftirlíkingu af sprengju á listasafni í Toronto en það varð til þess að safnið var rýmt og fjáröflunarsamkomu sem halda átti þar um kvöldið var aflýst. Þórarni var vikið úr skóla eftir ofsafenginn viðbrögð við verki hans tóku að birtast í fjölmiðlum og þurfti að dúsa eina nótt í fangelsi. Hann á von á ákærum vegna málsins. Þórarinn segir að þrátt fyrir þetta allt sé hann afar stoltur af verki sínu. Hann bendir á að sjaldan eða aldrei hafi verið rætt jafn mikið um list í Kanada og síðustu daga. Og þótt mest hafi farið fyrir gagnrýni á uppátæki Íslendingsins til að byrja með hafi hann fundið fyrir ótrúlega jákvæðum viðbrögðum í samfélaginu, "bæði frá samnemendum og fólki sem ég hef aldrei hitt," segir Þórarinn. Hann segir að á næstu dögum muni hann setjast niður með forsvarsmönnum skólans sem honum var vikið úr í von um að komast þar aftur inn. Þórarinn segir að brottvikning sín hafi verið "fjölmiðlastönt" framkvæmt til að þvo hendur skólans af verki hans. Þórarinn viðurkennir að það hafi verið óheppilegt að aflýsa hafi þurft fjáröflunarsamkomu fyrir rannsóknir á eyðni vegna verksins en hann tekur það fram að hann hefi ekki vitað af henni. "Þegar framkvæma á verk af þessum skala er ekki hægt að stjórna hverju einasta smáatriði. Það verður alltaf eitthvað element óvissu. Þess vegna verður maður bara að duga eða drepast, og kýla á það," segir Þórarinn Ingi Jónsson videolistamaður.
Mest lesið Hvað veistu um… árið 2010? Lífið „Það má herma“ Tíska og hönnun Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Tónlist Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Lífið Áhugi leshringja svo mikill að Salka stækkar Lífið samstarf Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar Lífið Stelpurnar í Kjólum og konfekti spá fyrir um úrslit HM Tíska og hönnun Góð tannheilsa styður við betra líf: Kristjana Ben tannlæknir gefur ráð Lífið samstarf Ný bók frá Kirkegaard 47 árum eftir dauða hans Menning Fleiri fréttir Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ Sjá meira