Körfubolti

Íslendingar í klefanum hjá Miami Heat - myndband

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jóhannes Árnason og Snorri Bjarnvin Jónsson hjá dabbfilms fóru á leik Toronto Raptors gegn Miami Heat í NBA-deildinni í körfubolta á dögunum en leikurinn var á heimavelli Toronto.  

Þeir Jóhannes og Snorri gerðu þátt um ferðina þar sem þeir fóru á æfingu hjá Miami Heat, blaðamannafund og inn í búningsklefa liðanna fyrir og eftir leik.  

Í þættinum sýna þeir upplifunina að fara á NBA leik og tóku m.a. viðtöl við LeBron James og Dwyane Wade hjá Miami Heat.  Þátturinn var sýndur á Stöð 2 Sport en nú er hægt að sjá hann hér á Vísi með því að smella hér fyrir ofan.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×