Isavia: Ekki slegið af öryggiskröfum 13. ágúst 2010 12:37
Hjördís Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúi Isavia segir að ekkert sé slegið af öryggiskröfum á Aðaldalsvelli við Húsavík en þangað stendur til að vísa Akureyrarflugi dagsins vegna verkfalls Slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna. Slökkviliðsbíll hefur verið fluttur frá Bakkaflugvelli til þess að uppfylla öryggiskröfur og munu starfsmenn Isavia manna hann. Slökkviliðsmenn segja í yfirlýsingu að með þessu sé verið að slá „verulega af öryggiskröfum sem alla jafna séu gerðar í farþegaflugi" og að starfsmennirnir hafi aðeins fengið stutta þjálfun í notkun slökkvibílsins. Hjördís segir hins vegar að starfsmennirnir hafi fengið alla þá þjálfun sem þörf sé á og að í hvívetna sé farið eftir öryggiskröfum. Félagaaðild ekki gefin upp Slökkviliðsmenn hafa ennfremur hvatt formenn þeirra stéttarfélaga sem hinir meintu verkfallsbrjótar tilheyra að skerast í leikinn. Aðspurð segir Hjördís að ekki verði gefið upp hvaða félögum mennirnir tilheyri, aðeins að þeir séu starfsmenn Isavia. Heimildir Vísis herma þó að ekki sé um starfsmenn FRR, félags flugmálastarfsmanna ríkisins, að ræða. Búist er við fyrstu vélinni til Húsavíkur um tvöleytið.
Tengdar fréttir Samningafundi slökkviliðsmanna lauk án niðurstöðu Samningafundi slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna með samninganefnd sveitarfélaga lauk hjá ríkissátatsemjara á sjötta tímanum í morgun, án árangurs og hefur annar fundur ekki verið boðaður. 13. ágúst 2010 07:01 Isavia samþykkir að opna flugvöllinn á Húsavík Flugfélag Íslands hefur farið þess á leit við Isavia ohf. að flugvöllurinn á Húsavík verði opnaður í dag 13.ágúst 2010 fyrir flugvélar Flugfélagsins. Isavia hefur samþykkt að verða við þessari beiðni og hefur því flutt slökkvibifreið sína frá flugvellinum á Bakka til Húsavíkur. 13. ágúst 2010 08:05 Verulega slegið af öryggiskröfum í Húsavíkurflugi Landssamband Slökkviliðs og sjúkraflutningamanna telur að með því að flytja gamlan slökkvibíl frá Bakkaflugvelli til Húsavíkur til þess að hægt sé að lenda á flugvelli bæjarins sé verið að slá verulega af öryggiskröfum sem alla jafna séu gerðar í farþegaflugi. 13. ágúst 2010 12:10 Fara yfir grundvallaratriði og meta stöðuna „Við erum að fara yfir grundvallaratriði í þessum málum og ræða saman,“ segir Sverrir Björn Björnsson formaður Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna. Um 70 félagsmenn hittust í Húnabúð í Skeifunni klukkan níu í morgun til að fara yfir stöðuna í samningaviðræðum en þriðja verkfall þeirra hófst klukkan átta í morgun og lýkur á miðnætti. 13. ágúst 2010 09:32 Mest lesið Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Innlent „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Innlent Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Innlent „Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“ Erlent „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Innlent Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Innlent Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Innlent Uppsagnir leggjast þungt á Vopnafjörð Innlent Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Innlent Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Innlent Fleiri fréttir „Þessi samningur var fullkomlega óboðlegur“ Krapvélar í yfirvinnu í góða veðrinu Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Uppsagnir leggjast þungt á Vopnafjörð „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Lokað vegna skorts á starfsleyfi „Við horfum bjartsýn fram á veg“ Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Hægt að skoða þyrlur og sprengjuleitarbúnað Gæslunnar Viðgerð Herjólfs dregst um þrjár vikur: „Vonum að þetta fari nú að verða búið“ Tilgangslaust stríð og æfir hjólabúar „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Bein útsending: Brautskráning Háskóla Íslands Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Ríkisstjórnin ýmist bensínlaus bátur eða á leikskóla í platheimi Friðarsamkomulag, rauð ljós á Sæbraut og ógeðfelldar lýsingar í dómsal Njósnarar enn í lögsögunni Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt „Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Hittust átta sinnum til að úrskurða um risaeðlubeinin Bólar ekkert á ályktun ungra miðflokksmanna Kviknaði í raftæki Samgönguáætlun samþykkt á Alþingi Staðfesta synjun SÍ: „Þetta er ekki bara fyrir Jón Atla“ Eigi von á tæplega 200 þúsund gestum Nýsamþykktum samningi hjólhýsabyggðarinnar sagt upp Sjá meira
Samningafundi slökkviliðsmanna lauk án niðurstöðu Samningafundi slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna með samninganefnd sveitarfélaga lauk hjá ríkissátatsemjara á sjötta tímanum í morgun, án árangurs og hefur annar fundur ekki verið boðaður. 13. ágúst 2010 07:01
Isavia samþykkir að opna flugvöllinn á Húsavík Flugfélag Íslands hefur farið þess á leit við Isavia ohf. að flugvöllurinn á Húsavík verði opnaður í dag 13.ágúst 2010 fyrir flugvélar Flugfélagsins. Isavia hefur samþykkt að verða við þessari beiðni og hefur því flutt slökkvibifreið sína frá flugvellinum á Bakka til Húsavíkur. 13. ágúst 2010 08:05
Verulega slegið af öryggiskröfum í Húsavíkurflugi Landssamband Slökkviliðs og sjúkraflutningamanna telur að með því að flytja gamlan slökkvibíl frá Bakkaflugvelli til Húsavíkur til þess að hægt sé að lenda á flugvelli bæjarins sé verið að slá verulega af öryggiskröfum sem alla jafna séu gerðar í farþegaflugi. 13. ágúst 2010 12:10
Fara yfir grundvallaratriði og meta stöðuna „Við erum að fara yfir grundvallaratriði í þessum málum og ræða saman,“ segir Sverrir Björn Björnsson formaður Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna. Um 70 félagsmenn hittust í Húnabúð í Skeifunni klukkan níu í morgun til að fara yfir stöðuna í samningaviðræðum en þriðja verkfall þeirra hófst klukkan átta í morgun og lýkur á miðnætti. 13. ágúst 2010 09:32