Ingó Veðurguð hafði enga stjórn á fellibylnum Debbie: „Maður vonar að húsið haldi“ Stefán Árni Pálsson skrifar 29. mars 2017 13:30 Vonandi fer þetta allt saman vel. „
Eins og einhverjir vita að þá erum við Ingólfur Þórarinsson búin að vera að skoða heiminn síðastliðna 2 mánuði og erum nú komin hálfa leið yfir hnöttinn til Ástralíu. Við erum stödd i strandbænum Airlie Beach í Queensland.“ Svona hefst frásögn Rakelar Maríu Hjaltadóttur á Facebook en hún hefur verið í heimsreisu undanfarnar vikur með Ingólfi Þórarinssyni, betur þekktur sem Ingó Veðurguð. Fellibylurinn Debbie náði landi á austurströnd Ástralíu í vikunni og henni fylgdu vindhviður sem náðu allt að 73 metrum á sekúndu. Þök fuku af húsum, rafmagnsstaurar féllu og tré rifnuðu upp með rótum. Tugir þúsunda heimila urðu rafmagnslaus. Umfang tjónsins liggur ekki fyrir en ljóst er að það er mikið.Síðustu dagar snúist um Debbie „Hingað keyrðum við frá Cairns til að fara í tvær skipulagðar ferðir og ætluðum að vera her i 4 nætur, fara i ferðirnar og halda svo áfram niður ströndina til að fara i þriggja daga siglingu um Fraiser island. Það vill nú ekki betur til en það að fellibylurinn Debbie var a hraðri leið að hitta akkúrat svæðið sem að við erum á og hafa síðustu dagar því snúist um það.“ Hún segir að báðum ferðunum hafi verið aflýst og þau hafi verið í vægast sagt ótrúlegum aðstæðum. „Frá mánudeginum hefur bærinn verið að undirbúa sig og allt hefur verið lokað enda veðrið farið að versna mikið. Þá máttum við þó fara út úr herberginu á meðan að það var enn bjart. Bylurinn skall á í gær og varði í allan gærdag og langt fram á nótt en þetta er stærsti bylur sem að hefur komið hingað i fylkið. Það er allt búið að vera rafmagnslaust i rúma 48 tíma og við erum búin að vera lokuð inni á hótelherbergi með engan mat, ekkert rafmagn i kolniðamyrkri að hlusta a storminn og horfa á hann rífa niður tré og annað. Að sitja i myrkri og vita ekki hvað tímanum líður á meðan að maður vonar að húsið haldi fyrir óveðri er ótrúlegt svo ekki sé meira sagt.“Allt í rúst Rakel segir að þau hafi fengið að fara út úr hótelherberginu um tíu leytið i morgun og hafi þá fengið morgunkorn og brauð. „Við skoðuðum okkur aðeins um en her er ennþá mikil rigning og vont veður. Í bænum er gjörsamlega ALLT i rúst og mikið sem að ég finn til með heima mönnum. Það er ekki með nokkru móti hægt að lýsa skemmdunum sem að hafa orðið a öllu hérna. Búist er við að það verði áfram rafmagnslaust næstu 3-5 daga, svo mikill er skaðinn. Við náðum smá hleðslu á símana í bílnum hjá hótel stjóranum og gátum þannig látið vita að okkur. Mig langaði bara að láta alla sem að höfðu áhyggjur vita að við erum heil a húfi.“ Hér að neðan má sjá stöðufærslu Rakelar í heild sinni.
Mest lesið Best skipulagða geymsla landsins í glæsihúsi við Laugardalinn Lífið Kvaddi dramað og flutti fyrir ástina Lífið „Það er alveg hægt að vinna rifrildið en þá tapar sambandið“ Lífið Tjáir sig í fyrsta sinn um bróðurmissinn Lífið Göngutúr með umhverfissálfræðingi: „Árás inn í umhverfið“ og vannýttasta horn borgarinnar Lífið Mistök að eyða ekki meiri tíma með börnunum Lífið Maður þurfti ekki að vera skyggn Gagnrýni „Allir vonuðu að þetta yrði stelpa“ Lífið Ein lausn er að liggja hlið við hlið og fróa sér Lífið Fagnaði 35 árum í sólinni Lífið Fleiri fréttir „Það er alveg hægt að vinna rifrildið en þá tapar sambandið“ Púsluðu sig inn í undanúrslit þrátt fyrir hremmingar Tjáir sig í fyrsta sinn um bróðurmissinn Fagnaði 35 árum í sólinni Best skipulagða geymsla landsins í glæsihúsi við Laugardalinn „Allir vonuðu að þetta yrði stelpa“ Mistök að eyða ekki meiri tíma með börnunum Göngutúr með umhverfissálfræðingi: „Árás inn í umhverfið“ og vannýttasta horn borgarinnar Kvaddi dramað og flutti fyrir ástina Selur slapp úr hvalskjafti Komo keppir á stærstu götubitakeppni í heimi Verslunarhjón selja glæsivillu í 108 Okkar eigið Ísland: Skelltu sér í slímuga laug Eitt stærsta bílabíó landsins fer fram um helgina „Það spurði þig enginn“ Mætt aftur til vinnu Ein lausn er að liggja hlið við hlið og fróa sér Fagurt einbýli í hjarta Vesturbæjar Ljúffengar vöfflur í nestisboxið Réði ekki við sig þegar hann hitti Lopez Ekki viss um að mamma hans hefði kosið hann Leyfir börnunum að sofa uppi í rúmi Smekklegasta fólk landsins skálaði í kaffi Skelltu sér úr háloftunum niður í Hörpu Klippt út af myndinni Ein litríkasta íbúð landsins til sölu Gæsun Maríu Thelmu tók óvænta U-beygju Gáfu dótturinni þrjú nöfn Stjörnulífið: Brúðkaupsafmæli á hlaupum og lokatónleikar Laufeyjar Var Díana prinsessa myrt? Sjá meira