Ingimundur og Sturla kátir í Breiðholtinu með þjálfaranum, Bjarka Sigurðssyni.
.FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Henry Birgir Gunnarsson skrifar:
ÍR verður nýliði í N1-deild karla næsta vetur og fékk heldur betur liðsstyrk í gær þegar silfurmennirnir Ingimundur Ingimundarson og Sturla Ásgeirsson skrifuðu báðir undir tveggja ára samning við uppeldisfélag sitt.
Þetta er mikill hvalreki fyrir ÍR enda um að ræða tvo af bestu leikmönnum N1-deildarinnar. Þeir félagar vona að fleiri leikmenn muni í kjölfarið ganga í raðir ÍR.
„Okkur langaði alltaf að fara heim. Þegar maður fór um átta árum síðan var alltaf talað um að koma aftur síðar og klára óklárað verkefni," sagði Ingimundur en þegar hann var síðast í ÍR náði félagið að verða bikarmeistari og komst nærri því að verða Íslandsmeistari.
„Þetta eru fyrstu skrefin í þá átt að gera ÍR að Íslandsmeisturum. Það gerist kannski ekki strax en tekst vonandi síðar. Við Stulli ætlum að leggja okkar af mörkum," sagði Ingimundur og bætti við að líklega hefði ekkert orðið af þessu nema þeir vinirnir hefðu báðir ákveðið að fara heim.
„Okkur fannst þetta vera rétti tímapunkturinn. Ræturnar eru sterkar og ÍR er okkar félag. Félagið togaði okkur heim enda erum við stoltir ÍR-ingar. Við erum grjótharðir 109-strákar," sagði Ingimundur léttur og vitnaði þar í póstnúmerið.
Ingimundur er bjartsýnn á að fleiri sterkir leikmenn komi nú til liðs við félagið.
„Ég skora á aðra gamla ÍR-inga að mæta á svæðið og aðrir eru líka velkomnir. Planið er að fara alla leið með þetta verkefni. Við erum ekki að fara að vera í einhverju dútli en góðir hlutir gerast hægt."
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Rhen-Neckar Löwen mætir Nantes í úrslitum EHF-bikarsins í handbolta á morgun eftir að hafa sigraði Göppingen 28-22 í undanúrslitum í Nantes í dag.
Meira
Nantes er komið í úrslit EHF-bikarsins eftir góðan 26-20 sigur á danska liðinu Team Tvis Holstebro en úrslitahelgi EHF-bikarsins er leikin í Nantes.
Meira
Einar Ingi Hrafnsson og félagar í Mors-Thy Håndbold þurftu að sætta sig við 25-26 tap á heimavelli á móti Skjern Håndbold í fyrsta leik liðanna í einvíginu um bronsverðlaunin í dönsku handboltadeildin...
Meira
Arnór Atlason er kominn á fulla ferð eftir hásinarslit og hann skoraði fimm mörk í kvöld þegar Flensburg-Handewitt vann ellefu marka útisigur á TV 1893 Neuhausen, 37-26.
Meira
Ólafur Stefánsson verður formlega kvaddur þegar Ísland mætir Rúmeníu í undankeppni EM 2014 þann 16. júní næstkomandi. Leikurinn fer fram í Laugardalshöllinni.
Meira
Florentina Stanciu, landsliðsmarkvörður í handbolta, er með tilboð frá liði í heimabæ sínum í Rúmeníu, SCM Craiova. Hún hefur í hyggju að semja við liðið til eins árs en snúa svo aftur til Íslands.
Meira
Alfreð Gíslason vann á þriðjudagskvöldið sinn tíunda stóra titil sem þjálfari þýska stórliðsins Kiel. Aðeins fimm tímabil eru síðan hann tók við og á þeim tíma hefur liðið náð í meira en 91 prósent st...
Meira
Aron Pálmarsson varð Þýskalandsmeistari í þriðja sinn með Kiel í gærkvöldi þegar liðið vann sannfærandi 31-25 sigur á Rhein-Neckar Löwen og Kiel búið að tryggja sér titilinn þrátt fyrir að liðið eigi ...
Meira
Alfreð Gíslason og lærisveinar hans í Kiel tryggðu sér í gær þýska meistaratitilinn í handbolta. Kiel vann sannfærandi sex marka sigur á Guðmundi Guðmundssyni og lærisveinum hans í Rhein-Neckar Löwen,...
Meira
Alfreð Gíslason gerði Kiel að þýskum meisturum í handbolta í fjórða sinn á fimm árum í kvöld þegar liðið vann sex marka sigur á Rhein-Neckar Löwen í uppgjöri tveggja efstu liða deildarinnar.
Meira
Alfreð Gíslason og lærisveinar hans í Kiel tryggðu sér þýska meistaratitilinn annað árið í röð í kvöld með því að vinna öruggan og sannfærandi 31-25 sigur á Rhein-Neckar Löwen. Alfreð lenti í bjórstur...
Meira
Kiel tryggði sér í kvöld þýska meistaratitilinn í handbolta eftir sannfærandi sex marka sigur á heimavelli á móti Guðmundi Guðmundssyni og lærisveinum hans í Rhein-Neckar Löwen, 31-25. Kiel er með fim...
Meira
Füchse Berlin komst upp í 3. sæti þýsku úrvalsdeildarinnar í handbolta eftir þriggja marka heimasigur á SC Magdeburg í kvöld, 29-26. Füchse Berlin hefur einu stigi meira en Flensburg-Handewitt sem á l...
Meira
Handboltaparið Einar Ingi Hrafnsson og Þórey Rósa Stefánsdóttir hefur náð að spila bæði með sterkum liðum í Danmörku og Þýskalandi undanfarin ár. Nú eru þau í Danmörku þar sem Þórey Rósa varð Evrópume...
Meira
Þórey Rósa Stefánsdóttir og Rut Jónsdóttir urðu um helgina Evrópumeistarar í handbolta kvenna eftir sigur á franska liðinu Metz í EHF-bikarkeppninni. Liðið getur einnig orðið danskur meistari í næstu ...
Meira
Kiel getur orðið Þýskalandsmeistari í handbolta í átjánda skipti takist liðinu að leggja Rhein-Neckar Löwen að velli á heimavelli sínum í kvöld. Leikurinn er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.
Meira
Stefán Arnarsson hefur gert nýjan tveggja ára samning við Val og mun því áfram stýra liðinu í N1-deild kvenna. Hann ætlaði að hætta eftir nýliðið tímabil.
Meira