Körfubolti

Ingi Þór: Enginn heimsendir ef við föllum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Ingi Þór Steinþórsson.
Ingi Þór Steinþórsson. vísir/anton
„Við fórum út úr okkar leik. Hættum að stilla upp og fórum í einstaklingsframtak. Þá komust þeir í hraðaupphlaup og þetta er ekki lið sem þú hleypir í hraðan leik með allar þessar skyttur,“ sagði Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari Snæfells, eftir stórt tap á heimavelli gegn Njarðvík er hann var beðinn um að útskýra hrun liðsins um miðjan annan leikhluta.

„Ég er ánægðastur með að við hættum ekki. Það var orðinn stór munur og ungir menn að koma inn. Hver einasta sekúnda fyrir þessa stráka er lærdómur. Þetta var betri leikur en hjá okkur en í Seljaskóla og það er ég ánægður með. Varnarleikurinn var samt rosalega mjúkur.“

Snæfelli var spáð neðsta sæti deildarinnar fyrir leiktíðina og sú spá virðist vera réttmæt miðað við fyrstu leiki. Á að styrkja liðið?

„Við verðum að líta í kringum okkur ef einhverjir vilja koma til okkar. Við teljum okkur vera með hóp af strákum sem ætla að vinna saman og vera stolt Snæfells. Snæfell er í uppbyggingu fyrir næstu ár. Það koma dýfur í öllum klúbbum og við höfum ekki reynslu og gæði því miður. En við ætlum okkur að verða betri með hverjum leik,“ segir Ingi Þór en er liðið nógu gott til að hanga uppi í deild þeirra bestu?

„Það verður að koma í ljós. Ef við förum niður þá er það enginn heimsendir. Eina sem maður biður um er að strákarnir leggi sig fram og fyrir því er fólkið í stúkunni að klappa. Ef það er ekki nógu gott til að hanga í deildinni þá er það bara þannig. Þá förum við bara í 1. deildina og byggjum upp á þessum strákum. Það er fullt af strákum að koma upp.“

Það er ekki annað að heyra á þjálfaranum en að félagið sé búið að sætta sig við fall næsta vor. Ingi vill þó ekki meina það.

„Við erum baráttufólk og að sjálfsögðu munum við gera allt sem við getum. Heimavöllurinn þarf að gefa okkur aukalega. Við gefumst ekki upp og langt frá því að við gefums upp fyrir fram.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×