Innlent

Illugi vill endurskoða lánakerfi LÍN

Ingvar Haraldsson skrifar
Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra segir enga stefnu vera til staðar varðandi úthlutun námslána.
Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra segir enga stefnu vera til staðar varðandi úthlutun námslána. vísir/gva
Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra telur fullt tilefni til að endurskoða útlánakerfi Lánsjóðs íslenskra námsmanna (LÍN). „Það er styrkjakerfi fólgið í íslenska námslánakerfinu en það er engin alvöru stefnumótun á bak við hvernig þeim styrkjum er úthlutað eða til hverra þeir renna,“ segir Illugi.

Í ársskýrslu LÍN, sem kom út í gær, kemur fram að um helmingur útlána LÍN fáist ekki endurgreiddur. Verulegur munur er á því hve mikið lánþegar greiða til baka af lánum sínum eftir því hve há lánsfjárhæðin er. Þannig endurgreiða einstaklingar sem skulda LÍN undir 2,5 milljónum króna 85 prósent af virði lánsins. Þeir sem skulda LÍN yfir 15 milljónir króna endurgreiða hins vegar á milli 18 og 27 prósent af virði lánsins. Ríkið styrkir því þá sem skulda LÍN mest um yfir 70 prósent af lánsfjárhæðinni en þá sem skulda LÍN minnst um 15 prósent að meðaltali.

Afskriftir LÍN jukust úr 2,8 milljörðum króna árið 2013 í 7,6 milljarða króna 2014. Þá jukust vanskil hjá Lánasjóðnum um 690 milljónir króna í fyrra. Mest hafa vanskilin aukist hjá yngstu lánþegunum. „Vissulega er það áhyggjuefni að sjá þróunina varðandi vanskilin,“ segir Illugi. Hann segir brýnt að við endurskoðun laga um LÍN verði tekið mið af auknum vanskilum og því hvernig ríkisstyrkir dreifist milli lánþega.

Hrafnhildur Ásta Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri LÍN, kallar eftir umræðu um hvort breyta þurfi lánakerfi LÍN.  „Viljum við setja aldurstakmörk á hvenær þú getur fengið lán? Átt þú að geta fengið lán eftir sextugt? Á að setja þak á upphæð námslána? Á að breyta afborgunarskilyrðunum með einhverjum hætti?“ spyr Hrafnhildur en bætir við að það sé stjórnvalda að ákveða með hvaða hætti brugðist verði við.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×