Lífið

Illa farnir - Dagur 2: Lenti í vandræðum inni á klósetti

Stefán Árni Pálsson skrifar
Frábær þáttur
Frábær þáttur vísir
Annar þátturinn af sjálfstæðu framhaldi af Illa förnum er kominn á Vísi. Í fyrri seríunni ferðuðust þeir Davíð og Binni um Ísland í 16 þátta seríu sem sýnd var við góðan orðstír seinasta vetur hér á Vísi.

Nú eru strákarnir komnir út fyrir landssteinanna og mættir til Tyrklands til að þefa uppi ný ævintýri og fjör.

Um er að ræða einskonar vídeóblogg þar sem þeir félagarnir tóku upp hvern dag fyrir sig.

Í þessum þætti byrjuðu þeir félagarnir í ræktinni á hótelinu og síðan beint út í sjó í allskonar leiki. Davíð Arnar lenti í vandræðum með klósettaðstæður á hótelinu þegar hann hafði lokið sér af. Þar hreinsaði hann sig með sérstakri vatnsbunu og fór það ver en áætlað er. Full af skemmtilegu efni í nýjasta þættinum af Illa förnum, þáttur sem kemur þér í gegnum mánudaginn.

Samtals verða þetta 5 þættir frá Tyrklands för strákanna, þættirnir koma inn á mánudögum næstu vikurnar hér á Vísi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×