Fótbolti

Jafntefli hjá Arnóri Ingva og félögum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Arnór Ingvi Traustason í leik gegn Athletic Bilbao í Evrópudeildinni.
Arnór Ingvi Traustason í leik gegn Athletic Bilbao í Evrópudeildinni. vísir/getty
Arnór Ingvi Traustason og félagar í Rapid Vín urðu að sætta sig við jafntefli, 1-1, gegn Sassuolo í Evrópudeildinni í kvöld.

Arnór Ingvi var í byrjunarliði Rapid en fór af velli á 73. mínútu.

Bæði lið eru með fjögur stig eftir leikinn en öll lið riðilsins voru með þrjú stig fyrir leikinn.

Genk er komið í toppsætið eftir 2-0 sigur á Athletic frá Spáni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×