Enski boltinn

Rashford skoraði sigurmark United í uppbótartíma

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hinn átján ára Marcus Rashford var hetja Manchester United þegar liðið vann Hull, 1-0, í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Rashford skoraði eina mark leiksins þegar komið var fram yfir venjulegan leiktíma en hann stýrði boltanum í autt netið eftir frábæran undirbúning frá fyrirliðanum Wayne Rooney.

United var mun meira með boltann í leiknum í dag en náði ekki að koma boltanum í netið fyrr en á síðustu stundu. Manchester United er því með níu stig eftir þrjár umferðir og er í öðru sæti deildarinnar. Hull er með sex stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×