Enski boltinn

Annar sigur Jóhanns Bergs og félaga

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Jóhann Berg hefur komið við sögu í öllum leikjum Burnley á tímabilinu.
Jóhann Berg hefur komið við sögu í öllum leikjum Burnley á tímabilinu. vísir/getty
Jóhann Berg Guðmundsson, landsliðsmaður í fótbolta, og félagar hans í enska úrvalsdeildarliðinu Burnley unnu góðan 2-0 sigur á Watford í lokaleik 6. umferðar deildarinnar í kvöld.

Jeff Hendrick kom heimamönnum yfir á 38. mínútu eftir sendingu frá Steven Defour úr hornspyrnu eftir fimm mínútur í seinni hálfleik skoraði Michael Keane annað mark nýliðanna, aftur eftir horn frá Belganum Defour.

Jóhann Berg var í byrjunarliði Burnley sem vann annan sigur sinn í deildinni í kvöld en liðið lagði síðast Liverpool í annarri umferð deildarinnar.

Þetta er í annað sinn sem Jóhann er í byrjunarliði Burnley en vængmaðurinn öflugi hefur komið við sögu í öllum leikjum liðsins á leiktíðinni.

Burnley lyfti sér með sigrinum upp í 13. sæti deildarinnar en Watford, sem vann Manchester United, 3-1, í síðustu umferð er tveimur sætum ofar með sjö stig líkt og Burnley.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×