Hvor var Axlar-Björn?

Gagnrýni
Fréttablaðið Gagnrýni 16. janúar 2012 20:00
Helgi og Atli Rafn skila leik sínum í Axlar-Birni ágætlega, segir í leikdómi.
Helgi og Atli Rafn skila leik sínum í Axlar-Birni ágætlega, segir í leikdómi.
Elísabet Brekkan skrifar:
Leikhús. Axlar-Björn eftir Björn Hlyn Haraldsson. Sýnt á Litla sviði Borgarleikhússins. Leikarar: Atli Rafn Sigurðarson og Helgi Björnsson Leikmynd: Axel Hallkell Jóhannesson Lýsing: Kjartan Þórisson Búningar: Mundi Tónlist: Kjartan Sveinsson Hljóðmynd: Eiríkur Sigurðsson Handrit og leikstjórn: Björn Hlynur Haraldsson.

Gestamorðingjanum fræga af Snæfellsnesi hefur lítil athygli verið sýnd í nokkur hundruð ár þar til leikhúsfólk er nú allt í einu orðið sólgið í að gera hann að sínum. Það eru ekki nema örfáir mánuðir síðan saga Axla-Bjarnar var frumsýnd á Rifi á Snæfellsnesi og var þar saga hans rakin með blóði og tilheyrandi slettum og sagt frá örlögum gesta hans. Nú er hann kominn upp í annarri mynd hjá þeim Vesturportsmönnum á Litla sviði Borgarleikhússins. Frumsýning á miðvikudegi, öll sæti skipuð og eftirvænting í salnum. Eitthvað íslenskt, eitthvað nýtt og svo auðvitað Helgi Björns.

Innblásinn af voðaverkum Axlar-Bjarnar leitar höfundurinn Björn Hlynur að skýringu á glæpsamlegri hegðun ungs manns sem telur sig vera umræddan Björn Pétursson og er líklega hjá geðlækni þegar leikurinn hefst. Þeir bregða sér í gervi hvor annars og í tryllingslegri hegðun hins unga er sagan gamla rakin. Helgi í hlutverki sála tekur á móti veika og seka unga manninum og fær hann til þess að segja sér sögu sína um leið og sá ungi krefur lækninn eða sálfræðinginn um skýringu á hans lífi. Sá ungi gleypir við frásögnum sála og gerir þær að sínum á ýmsum stöðum í framvindu verksins.

Þetta er á köflum svolítið smart valdabarátta en óskiljanleiki er engu að síður orð sem kemur fram á varirnar og leitar svolítið á hugann svona eftir á. Höfundur segir í leikskrá að sagan sé stútfull af verðmætu þýfi eins og margt sem gott er. Það er náttúrulega eðlilegt að það þurfi að koma víða við þegar búa á til skýringu á brjálæðingshegðun. Hljóðmyndin sem Eiríkur Sigurðsson er skrifaður fyrir, var mjög ágeng með alls kyns keðju- og sagarhljóðum, höggum og gný. Ungi maðurinn þykist ekkert óttast nema ef vera skyldi trúða.

Skyndilega birtist sáli í slíku gervi og eins sem sjónvarpsþáttastjórnandinn frægi sem fær fólk til að segja óhugnanlega hluti um sína nánustu. Helgi fór á kostum í þessum tveimur atriðum og auðvitað bráðnaði salurinn þegar þeir félagar brustu út í eggjastokkasöng. Viðmiðið Axlar-Björn himself hafði vit á því að ganga frá sínum kvalara. Hér eru lítil börn sýnd í brúðugervi og með því að hálshöggva aðra brúðuna verða hlutirnir svolítið eins og Rambóleikur í stað þess að gefa ofbeldið í skyn sem hefði líklega hrifið áhorfendur meir.

Það er í raun erfitt að segja nokkuð um þessa sýningu annað en að þeir félagar skiluðu leik sínum ágætlega. Atli brá sér í mjög mörg hlutverk, bæði kvenna og barna en engu að síður var mjög erfitt að finna til nokkurrar samúðar með persónunum. Niðurstaðan á kannski að vera að þeir sem verða fyrir ógeði verði ógeðslegir. Leikmynd Axels Hallkels Jóhannessonar var að því leytinu sniðug að þeir félagar á stofunni sátu í raun og veru á taflborði, veggirnir voru þunnir. Að veggurinn hrynur yfir aðalpersónuna í lokin á kannski að skýrskota til annars hruns, það verður nú bara hver og einn að reyna að lesa í, því nóg var nú af táknunum.

Niðurstaða: Sýningin er saga um sögu, stútfull af skírskotunum sem lenda í hrærigraut.

Fleiri fréttir - Gagnrýni

Gagnrýni 24. maí. 2012 22:00

Barsmíðar og bollukinnar

Aðdáendur órakaða ólátabelgsins Jason Statham verða himinlifandi, en realistar ættu að hal...  

Meira
Gagnrýni 24. maí. 2012 10:30

Súrrealísk sumargjöf

Stórfín frumraun Tilbury, stappfull af grípandi popplögum og forvitnilegum textum. Tónlist...  

Meira
Gagnrýni 23. maí. 2012 20:00

Innan þægindarammans

Dark Shadows er nokkuð góð skemmtun sem skrifast að stórum hluta á Johnny Depp. Leikstjóri...  

Meira
Gagnrýni 23. maí. 2012 10:00

Gengu af göflunum

Algerlega frábærir tónleikar. Ég get ekki ímyndað mér að nokkur hafi orðið fyrir vonbrigðu...  

Meira
Gagnrýni 21. maí. 2012 10:00

Starað í poppið

Hvað fór úrskeiðis hjá þessum hæfileikaríka grínara? Borat var ósmekkleg frá upphafi til e...  

Meira
Gagnrýni 16. maí. 2012 11:00

Norah prófar eitthvað nýtt

Þokkalegasta plata sem aðdáendur Noruh Jones ættu að vera sáttir við. Danger Mouse býr til...  

Meira
Gagnrýni 11. maí. 2012 15:00

Út um þúfur

Aðdáendur Mel Gibson eiga betra skilið. Það er orðið svo skrambi erfitt að halda upp á han...  

Meira
Gagnrýni 10. maí. 2012 14:30

Endurvinnslukóngurinn

Jack White með eina af plötum ársins. Blunderbuss er lítið meistaraverk; þrettán lög, hver...  

Meira
Gagnrýni 09. maí. 2012 12:30

Barist í blokk

Það er ekki á hverjum degi sem indónesískar hasarmyndir rata í íslensk kvikmyndahús. En ek...  

Meira
Gagnrýni 08. maí. 2012 11:00

Fersk og óvænt plata

Nýjasta hljómsveitin hans Krumma með frábæra plötu. Hún kemur fersk inn í íslenska tónlist...  

Meira
Gagnrýni 03. maí. 2012 11:00

Bubbi í toppformi

Þorpið er, ef mér skjátlast ekki, 26. plata Bubba með nýju efni. Það eru ótrúleg afköst. O...  

Meira
Gagnrýni 02. maí. 2012 11:15

Leikræn og lipur fengitíð

Svar við bréfi Helgu er góð sýning með skýrri persónusköpun. Leikgerðin er mjög spennandi....  

Meira
Gagnrýni 01. maí. 2012 15:00

Árshátíð ofurhetja

The Avengers er alvöru árshátíð. Mikið hlegið og allir í sínu fínasta pússi. Hulk var þó v...  

Meira
Gagnrýni 20. apr. 2012 13:00

Skálkar á skólabekk

Mátulegur skammtur af formúluskopi. Allt gott og blessað. Þessi ágæti grínhasar krefst eng...  

Meira
Gagnrýni 18. apr. 2012 21:00

Rokkaður gospelblús

Blússveit Þóllýjar er skipuð söngkonunni Þollý Rósmunds, gítarleikaranum Magnúsi Axel Hans...  

Meira
Gagnrýni 18. apr. 2012 15:00

Rokk og ról

Fyndin og fjörug brelluveisla. Og hávaðinn er ægilegur. Battleship veit hvað hún vill vera...  

Meira
Gagnrýni 13. apr. 2012 20:00

Fram og aftur morðgátuna

Vel byggður og spennandi krimmi með ótrúlegu fléttumunstri og vel skrifuðum persónum. Nesb...  

Meira
Gagnrýni 13. apr. 2012 12:30

Vessa- og vandræðahúmor

Fortíðardaðrið er töluvert og aðdáendur myndanna geta eflaust skemmt sér sæmilega yfir Ame...  

Meira
Gagnrýni 12. apr. 2012 14:00

Vel útfært og kraftmikið

Muck stimplar sig inn með pottþéttri rokkplötu, lagasmíðarnar eru fínar, flutningur þéttur...  

Meira
Gagnrýni 11. apr. 2012 20:00

Farsaskrímslið snýr aftur

Tveir 11 ára piltar lumbra hvor á öðrum og tennur hljóta skaða af. Foreldrar drengjanna hi...  

Meira
Gagnrýni 11. apr. 2012 09:00

Hress skilnaðarplata frá drottningu poppsins

MDNA er tólfta plata Madonnu og sú fyrsta síðan Hard Candy kom út fyrir fjórum árum. Þetta...  

Meira
Gagnrýni 11. apr. 2012 08:00

Perlan skín enn

Það er gaman að fá þessa perlu aftur í bíó. Hún fjallar um atburði sem áttu sér stað í upp...  

Meira
Gagnrýni 10. apr. 2012 14:00

Falleg sýning um föðurleit

Saga Magneu, tengdamóður höfundarins Vals Freys Einarssonar og móður leikmynda- og búninga...  

Meira
Gagnrýni 10. apr. 2012 10:00

Tilkomumikil hávaðamessa

AMFJ er listamannsnafn Aðalsteins Jörundssonar. Hann hefur vakið athygli undanfarin ár fyr...  

Meira
Gagnrýni 02. apr. 2012 17:00

Björk hittir Áhöfnina á Halastjörnunni

Karl Olgeirs, Jón Rafns og Kristinn Snær djassa upp íslensk popplög úr ólíkum áttum. Eins ...  

Meira
Gagnrýni 29. mar. 2012 14:30

Þetta er ungt og leikur sér

Þessi risastóra mynd er byggð á vinsælli skáldsögu eftir Suzanne Collins og gerist í ótilg...  

Meira
Gagnrýni 27. mar. 2012 12:00

Meðalmennska á Manhattan

Leikararnir halda myndinni á floti. Þá er umhverfið notað á skemmtilegan máta og ætti að k...  

Meira
Tarot
Hugsaðu þér, eða skrifaðu spurningu og dragðu þér spádómsspil
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Lífið - Yfir / Gagnrýni / Hvor var Axlar-Björn?