Innlent

Hvetur fólk til að fækka fötum fyrir utan Landspítalann

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Fjórir einstaklingar hittast alla þriðjudaga á lóð Landspítalans og biðja fyrir eyddum fóstrum.
Fjórir einstaklingar hittast alla þriðjudaga á lóð Landspítalans og biðja fyrir eyddum fóstrum.
Boðað hefur verið til samstöðufundar fyrir utan Landspítalann á morgun. Tilefnið er að tæplega tólf hundruð manns rituðu nafn sitt á undirskriftalista sem afhentur verður spítalanum á morgun. Með listanum er spítalinn hvattur til að taka afstöðu til mótmælahópsins Lífsverndar sem alla þriðjudaga hittist fyrir utan kvennadeild Landspítalans og biður fyrir eyddum fóstrum.

Bryndís Björnsdóttir stendur fyrir fundinum. Fundinn kallar hún „samstöðu-stríp“ og hvetur alla þá sem löngun hafa til að fækka fötum.

„Ég er með þessu að fylgja eftir brjóstabyltingunni. Konur eiga að geta borið sig á þann hátt sem þær vilja og hafa rétt yfir sínum líkama og lífi eins og komið hefur fram í öðru samhengi við berun brjósta. Þetta er mótsvar við því sem Lífsvernd leggur fram á þessari lóð en það sem þau eru að gera og standa fyrir er einfaldlega áreiti,“ segir Bryndís í samtali við Vísi.

„Með sínum mótmælum hefur Lífsvernd tekið sér það vald að marka lóð Landspítalans sem sambærilegt rými til opinberrar tjáningar. Nú munu berstrípaðir líkamar taka sér þar pláss líka og viðra sínar skoðanir á þessum skjólgóða vettvangi. Í tiltefni af afhendingu undirskriftalistans verða oddhvassar geirvörtur hvattar til að mynda sameiginlega stefnu í samstöðustrípi í norðanáttinni.“

Markmið undirskriftarsöfnunarinnar, sem hófst í lok síðasta árs, er að stöðva mótmæli bænahópsins. Vonast var til að ná einni undirskrift fyrir hverja þá konu sem fer í fóstureyðingu, sem eru um þúsund á ári hverju.

Mótmælin eru boðuð fyrir utan kvennadeild Landspítalans klukkan tólf á morgun. Yfirskriftin er „Stöðvum mótmæli Lífsverndar“.


Tengdar fréttir

Landspítalinn banni mótmæli bænahóps

Hafin er undirskriftasöfnun til að mótmæla mótmælum bænahópsins Lífsverndar sem biður fyrir eyddum fóstrum við kvennadeild Landspítalans einu sinni í viku.

Biðja fyrir eyddum fóstrum við Kvennadeild Landspítalans

„Við biðjum fyrir vernd fyrir ófædd börn og stöðvun á fóstureyðingum. Við biðjum fyrir hugarfarsbreytingu til fóstureyðinga því við trúum að ófædd börn séu líka manneskjur og þau eigi að fá möguleika á að lifa,“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×