Íslenski boltinn

Hvert félag í Pepsi-deildinni fær 3,35 milljónir frá UEFA

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Úr leik FH og Vals.
Úr leik FH og Vals. Vísir/Andri Marinó
Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, hefur samkvæmt venju úthlutað hluta af þeim tekjum sem sambandið hafði af Meistaradeildinni til félaga í öllum aðildarlöndum UEFA. KSÍ leggur út fyrir 38 milljónum króna til viðbótar til annarra félaga.

Framlög UEFA vegna Meistaradeildar UEFA til barna- og unglingastarfs mun þó einungis renna til félaga í efstu deild en alls munu liðin í Pepsi-deildinni skipta á milli sín 40 milljónum króna. Þetta kemur fram á heimasíðu KSÍ.

Hvert lið í Pepsi-deildinni fær því 3,35 milljóna króna styrk frá UEFA sem verða allar að fara barna- og unglingastarfs félagsins.

Stjórn KSÍ hefur jafnframt samþykkt að leggja til um 38 milljónir króna til viðbótar til barna-og unglingastarfs sem skiptist á milli aðildarfélaga í öðrum deildum og utan deilda.   

Samþykkt stjórnar KSÍ byggir á samráði við aðildarfélögin og almennri sátt um skiptingu fjármunanna.  Greiðslan til félaganna skal renna óskipt til eflingar knattspyrnu barna og unglinga frá yngstu iðkendum til og með 2. aldursflokks karla og kvenna.  

Samtals er því framlag til barna- og unglingastarfs fyrir árið 2015 áætlað um 78 milljónir króna.



Eftirfarandi tafla sýnir greiðslur í milljónum króna frá UEFA vegna Meistaradeildarinnar 2014/2015 og frá KSÍ til barna- og unglingastarfs aðildarfélaga KSÍ. Styrkurinn kemur til greiðslu 3. desember 2015.

Pepsi-deild     Upphæð

Breiðablik     3.350.000 kr.

FH         3.350.000 kr.

Fjölnir     3.350.000 kr.

Fylkir         3.350.000 kr.

ÍA         3.350.000 kr.

ÍBV         3.350.000 kr.

Keflavík     3.350.000 kr.

KR         3.350.000 kr.

Leiknir R     3.350.000 kr.

Stjarnan     3.350.000 kr.

Valur         3.350.000 kr.

Víkingur R     3.350.000 kr.

Samtals     40.200.000 kr.

    

1. deild     Upphæð

Fram         1.600.000 kr.

Grindavík     1.600.000 kr.

Grótta         1.600.000 kr.

Haukar         1.600.000 kr.

HK         1.600.000 kr.

KA         1.600.000 kr.

Selfoss     1.600.000 kr.

Víkingur Ó.     1.600.000 kr.

Þór         1.600.000 kr.

Þróttur R.     1.600.000 kr.

Samtals     16.000.000 kr.

    

2. deild     Upphæð

Afturelding     1.100.000 kr.

Höttur         1.100.000 kr.

ÍR         1.100.000 kr.

KF         1.100.000 kr.

Leiknir F.     1.100.000 kr.

Sindri         1.100.000 kr.

Tindastóll     1.100.000 kr.

Ægir         1.100.000 kr.

Samtals     8.800.000 kr.

    

Önnur félög í deildarkeppni og sameiginleg lið í efri deildum - þátttaka í KSÍ mótum (bæði kyn)     Upphæð

Austri         800.000 kr.

Álftanes     800.000 kr.

BÍ         800.000 kr.

Bolungarvík     800.000 kr.

Dalvík         800.000 kr.

Einherji     800.000 kr.

Hamar         800.000 kr.

Hvöt         800.000 kr.

Kormákur     800.000 kr.

Skallagrímur     800.000 kr.

Snæfell     800.000 kr.

Valur Rfj     800.000 kr.

Víðir         800.000 kr.

Þróttur Nes     800.000 kr.

Þróttur Vogum     800.000 kr.

Samtals     12.000.000 kr.

Það er hægt að sjá frekari upplýsingum um málið í frétt á heimasíðu KSÍ.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×