Hverjir verða skáld?

Gagnrýni
Fréttablaðið Gagnrýni 02. janúar 2012 20:00
Björn Thors og Hilmir Snær í hlutverkum sínum.
Björn Thors og Hilmir Snær í hlutverkum sínum. Mynd/HAG
Elísabet Brekkan skrifar:
Leikhús. Heimsljós. Þjóðleikhúsið. Höfundur: Halldór Laxness. Leikgerð og leikstjórn: Kjartan Ragnarsson. Leikarar: Hilmir Snær Guðnason, Björn Thors, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Vigdís Hrefna Pálsdóttir, Þórunn Arna Kristjánsdóttir, Svandís Dóra Einarsdóttir, Guðrún Gísladóttir, Lára Sveinsdóttir, Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, Ólafur Egill Egilsson, Pálmi Gestsson, Jóhannes Haukur Jóhannesson, Stefán Hallur Stefánsson, Þorsteinn Bachmann, Arnar Jónsson, Ævar Þór Benediktsson, Úlfhildur Ragna Arnardóttir/Nína Ísafold Daðadóttir.

Heimsljós eftir Halldór Laxness er sagan um Íslendinga eins og þeir margir hverjir vilja sjá sig. Skáldið stendur fyrir utan lífið, horfir á, er ekki með og tekur ekki afstöðu en getur engu að síður heillað kvenfólkið og jafnvel ráðamenn upp úr skónum þó það sé fátækt og umkomulaust í hinum veraldlega heimi.

Frumsýningin í Þjóðleikhúsinu á annan í jólum var leikgerð Kjartans Ragnarssonar á þessu viðamikla skáldverki. Það er þrekvirki að ráðast í leikgerð af þessu tagi. Hverju á að sleppa, hverju á að lyfta fram, hvernig á að mála aftur myndir sem til eru í hugskoti svo margra?

Kjartan velur natúralistískan leik þó svo að nokkuð hafi borið á því að leikstíll persónanna var mjög ólíkur. Hann velur að láta tvo menn fara með hlutverk skáldsins, þá Björn Thors og Hilmi Snæ Guðnason. Björn í hlutverki barnsins og unga mannsins og Hilmir þá er hann varð eldri en saman töluðu þeir og komu þannig hinum frægu hugrenningum skáldsins Ólafs Kárasonar til skila. Þeir voru báðir mjög skýrir í sínum hlutverkum.

Sýningin hófst á viðtali Péturs Péturssonar við Halldór Laxness í Ríkisútvarpinu fyrir margt löngu. Þar syngur Laxness með sínu nefi Maístjörnuna sem hvert mannsbarn í dag kann. Þetta upphafsstef leiddi áhorfendur inn í glaðan heim væntinga um hvað koma skyldi. Þegar tjaldið var frá dregið vorum við stödd á bernskuheimilinu Fæti þar sem Ólafur var niðursetningur og illa með hann farið en þó gaukaði Jana, sem Lára Sveinsdóttir lék, að honum kandís eða brauðmola eftir að Kamarilla (Guðrún S. Gísladóttir) var búin að húðstrýkja hann. Bræðurnir lögðu hann í einelti og börðu þannig að hann varð örkumla upp frá því. En haltur var hann aðeins af og til í gegnum sýninguna.

Stúlkurnar þrjár sem allar elskuðu hann hver á sinn máta voru heldur nútímalegar miðað við aðra í sýningunni í tilsvörum. Þó svo að textinn sé úr verkinu þá er það tónninn sem er afgerandi.

Svandís Dóra Einarsdóttir var sterk í hlutverki Jóu og Þórunn Arna Kristjánsdóttir eins og lítil dekurrófa úr allt öðru leikriti. Vigdís Hrefna Pálsdóttir lék Þórunni í Kömbum, þá er læknaði Ólaf og sýndi hún fantagóðan leik einkum á miðilsfundinum. Pálmi Gestsson fór með hlutverk aðalkapítalistans Péturs þríhross sem níddist á smælingjunum og var hann skemmtilegur en datt svolítið í spaugstofustílinn á köflum. Jóhannes Haukur sem Jens Færeyingur var óborganlegur.

Einstakar senur eru eftirminninlegar, eins og þegar Ólafur kemur á fund prestsins og biður hann um að jarða barnið en presturinn þvaðrar um kostnaðinn við prestsverkin um leið og hann slafrar í sig rjómatertu. Þorsteinn Bachmann náði mjög góðum tökum á þessari ógeðugu persónu einkum þegar hann var drukkinn með Pétri þríhrossi.

Hlutverki hinnar óhamingjusömu Jarþrúðar skilar Ólafía Hrönn Jónsdóttir með prýði. Jarþrúður fórnar sér og öllu til þess að bjarga þessum manni og eignast með honum tvö börn sem bæði deyja frá þeim.

Ævar Þór Benediktsson sem Sigurður Breiðfjörð svífur inn í hvítum jakkafötum, brúnum skóm og bláum sokkum, það atriði í upphafi var svolítið fyndið, en annars var lítið um fyndni. Ólafur Egill Egilsson leikur hinn berklaveika Örn Úlfar og var það helst atriðið þegar hann féll dauður niður sem er eftirminninlegt. Magga litla var á frumsýningunni leikin af Úlfhildi Rögnu Arnardóttur og þó hlutverkið væri lítið var það stórt fyrir svo litla leikkonu. Leikmyndin var sú sama allan tímann, gráir flekar opnanlegir með ryðguðum bárujárnsrennihurðum. Það sást þó móta fyrir salthrauk í fjarska sem jafnframt átti að vera táknið um jökulinn sem fatlaða barnið gat horft á í gegnum spegilbrot.

Þetta er löng og svifasein sýning. Óljóst hvort við getum tengt okkur við hana í dag. Hin pólitísku átök millum sósíalistanna og þjóðernisrembuliðsins verður svolítið eins og hressileg myndskreyting í hinni gráu umgjörð. Uppgjörið þegar Ólafur Kárason rekur Jarþrúði frá sér eftir að þau eru búin að jarða Möggu litlu, verður of kvikindislegt þegar þeir eru líkamlega tveir um að hrinda henni niður hlíðina. Hafi átt að vera samúð með honum þá hverfur hún þar, en eins og menn vita þá fékk hann ekki Jóu í Veghúsum heldur neyddist til að halda sína leið með Jarþrúði sem kom til baka.

Lýsingin var ágæt og sömuleiðis tónlistin þótt hún væri of há í byrjun og kæfði nokkuð fyrstu samtölin.

Niðurstaða: Á heildina litið var sýningin allt of löng en engu að síður unun að hlusta á vel með farinn góðan texta.

Fleiri fréttir - Gagnrýni

Gagnrýni 24. maí. 2012 22:00

Barsmíðar og bollukinnar

Aðdáendur órakaða ólátabelgsins Jason Statham verða himinlifandi, en realistar ættu að hal...  

Meira
Gagnrýni 24. maí. 2012 10:30

Súrrealísk sumargjöf

Stórfín frumraun Tilbury, stappfull af grípandi popplögum og forvitnilegum textum. Tónlist...  

Meira
Gagnrýni 23. maí. 2012 20:00

Innan þægindarammans

Dark Shadows er nokkuð góð skemmtun sem skrifast að stórum hluta á Johnny Depp. Leikstjóri...  

Meira
Gagnrýni 23. maí. 2012 10:00

Gengu af göflunum

Algerlega frábærir tónleikar. Ég get ekki ímyndað mér að nokkur hafi orðið fyrir vonbrigðu...  

Meira
Gagnrýni 21. maí. 2012 10:00

Starað í poppið

Hvað fór úrskeiðis hjá þessum hæfileikaríka grínara? Borat var ósmekkleg frá upphafi til e...  

Meira
Gagnrýni 16. maí. 2012 11:00

Norah prófar eitthvað nýtt

Þokkalegasta plata sem aðdáendur Noruh Jones ættu að vera sáttir við. Danger Mouse býr til...  

Meira
Gagnrýni 11. maí. 2012 15:00

Út um þúfur

Aðdáendur Mel Gibson eiga betra skilið. Það er orðið svo skrambi erfitt að halda upp á han...  

Meira
Gagnrýni 10. maí. 2012 14:30

Endurvinnslukóngurinn

Jack White með eina af plötum ársins. Blunderbuss er lítið meistaraverk; þrettán lög, hver...  

Meira
Gagnrýni 09. maí. 2012 12:30

Barist í blokk

Það er ekki á hverjum degi sem indónesískar hasarmyndir rata í íslensk kvikmyndahús. En ek...  

Meira
Gagnrýni 08. maí. 2012 11:00

Fersk og óvænt plata

Nýjasta hljómsveitin hans Krumma með frábæra plötu. Hún kemur fersk inn í íslenska tónlist...  

Meira
Gagnrýni 03. maí. 2012 11:00

Bubbi í toppformi

Þorpið er, ef mér skjátlast ekki, 26. plata Bubba með nýju efni. Það eru ótrúleg afköst. O...  

Meira
Gagnrýni 02. maí. 2012 11:15

Leikræn og lipur fengitíð

Svar við bréfi Helgu er góð sýning með skýrri persónusköpun. Leikgerðin er mjög spennandi....  

Meira
Gagnrýni 01. maí. 2012 15:00

Árshátíð ofurhetja

The Avengers er alvöru árshátíð. Mikið hlegið og allir í sínu fínasta pússi. Hulk var þó v...  

Meira
Gagnrýni 20. apr. 2012 13:00

Skálkar á skólabekk

Mátulegur skammtur af formúluskopi. Allt gott og blessað. Þessi ágæti grínhasar krefst eng...  

Meira
Gagnrýni 18. apr. 2012 21:00

Rokkaður gospelblús

Blússveit Þóllýjar er skipuð söngkonunni Þollý Rósmunds, gítarleikaranum Magnúsi Axel Hans...  

Meira
Gagnrýni 18. apr. 2012 15:00

Rokk og ról

Fyndin og fjörug brelluveisla. Og hávaðinn er ægilegur. Battleship veit hvað hún vill vera...  

Meira
Gagnrýni 13. apr. 2012 20:00

Fram og aftur morðgátuna

Vel byggður og spennandi krimmi með ótrúlegu fléttumunstri og vel skrifuðum persónum. Nesb...  

Meira
Gagnrýni 13. apr. 2012 12:30

Vessa- og vandræðahúmor

Fortíðardaðrið er töluvert og aðdáendur myndanna geta eflaust skemmt sér sæmilega yfir Ame...  

Meira
Gagnrýni 12. apr. 2012 14:00

Vel útfært og kraftmikið

Muck stimplar sig inn með pottþéttri rokkplötu, lagasmíðarnar eru fínar, flutningur þéttur...  

Meira
Gagnrýni 11. apr. 2012 20:00

Farsaskrímslið snýr aftur

Tveir 11 ára piltar lumbra hvor á öðrum og tennur hljóta skaða af. Foreldrar drengjanna hi...  

Meira
Gagnrýni 11. apr. 2012 09:00

Hress skilnaðarplata frá drottningu poppsins

MDNA er tólfta plata Madonnu og sú fyrsta síðan Hard Candy kom út fyrir fjórum árum. Þetta...  

Meira
Gagnrýni 11. apr. 2012 08:00

Perlan skín enn

Það er gaman að fá þessa perlu aftur í bíó. Hún fjallar um atburði sem áttu sér stað í upp...  

Meira
Gagnrýni 10. apr. 2012 14:00

Falleg sýning um föðurleit

Saga Magneu, tengdamóður höfundarins Vals Freys Einarssonar og móður leikmynda- og búninga...  

Meira
Gagnrýni 10. apr. 2012 10:00

Tilkomumikil hávaðamessa

AMFJ er listamannsnafn Aðalsteins Jörundssonar. Hann hefur vakið athygli undanfarin ár fyr...  

Meira
Gagnrýni 02. apr. 2012 17:00

Björk hittir Áhöfnina á Halastjörnunni

Karl Olgeirs, Jón Rafns og Kristinn Snær djassa upp íslensk popplög úr ólíkum áttum. Eins ...  

Meira
Gagnrýni 29. mar. 2012 14:30

Þetta er ungt og leikur sér

Þessi risastóra mynd er byggð á vinsælli skáldsögu eftir Suzanne Collins og gerist í ótilg...  

Meira
Gagnrýni 27. mar. 2012 12:00

Meðalmennska á Manhattan

Leikararnir halda myndinni á floti. Þá er umhverfið notað á skemmtilegan máta og ætti að k...  

Meira
Tarot
Hugsaðu þér, eða skrifaðu spurningu og dragðu þér spádómsspil
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Lífið - Yfir / Gagnrýni / Hverjir verða skáld?