Hvað með það?

Fréttablaðið Fastir pennar 13. febrúar 2012 08:00
Guðmundur Andri Thorsson, rithöfundur.
Guðmundur Andri Thorsson, rithöfundur.
Guðmundur Andri Thorsson skrifar:
Þeir sáust saman á bíó dómarinn og verjandinn í máli Baldurs Guðlaugssonar. Og hvað með það? Mega nú gamlir félagar ekki lengur fara saman í bíó til að slaka á eftir erfiðan dag án þess að eiga á hættu að það sé komið í DV daginn eftir og gert tortryggilegt og afbakað á alla lund? Greinilega ekki.

Þeir fóru á bíó saman strákarnir, Benedikt Bogason dómari og Karl Axelsson lögmaður og Helgi Jóhannesson félagi Karls hjá Lögmannsstofunni Lex. Þeir sáu Contraband, hressa smyglaramynd. Strákarnir. Og hvað með það? Þetta er gömul aðferð við að slaka á – og efla tengslin. Þegar karlmenn fara saman á bíó er það eiginlega næsta stig við að detta í það saman, fara á völlinn saman; strákar að gera eitthvað strákalegt sér og vera í sínum hóp með sínum líkum; það er samvera sem sýnir sterk og sérstök tengsl, maður fer ekki á bíó nema með elstu og traustustu vinum sínum. Þó að ég hitti mann sem ég kannaðist við úti í búð og spjallaði svolítið við hann um landsins gagn og nauðsynjar og sameiginlega vini þá kæmi það mjög skringilega út ef ég myndi í miðju samtali stinga upp á því að við færum saman á bíó. Til þess að karlmenn fari saman á bíó þarf sterkustu vinaböndin. Þetta er ein af ótal óskráðum reglum samfélagsins.

Og hvað með hvað? Þær eru fjölmargar óskráðu og ósögðu reglurnar í þessu samfélagskríli okkar. Sérhvert mengi samfélagsins hefur sínar. Rithöfundar hafa sínar, sjómenn sínar, hjúkrunarfræðingar sínar. Ég veit ekki hvernig þetta er hjá lögfræðingum og dómurum; fyrir mér er þetta bara fólk í skikkjum þarna uppi einhvers staðar, í upphæðum réttlætisins og viskunnar. Það hafði aldrei hvarflað að mér að dómarar gerðu yfirleitt nokkuð annað en að sitja í sinni einmanalegu tign og siðferðilega hásæti og vera þaðan komnir að dæma lifendur og dauða. Svo færu þeir heim að lesa Spinoza og Áfanga Sigurðar Nordal.

En auðvitað er þetta allt bara fólk og á sína vini, skólasystkini og fjölskyldu – sitt líf. Þau eru sjálfsagt mörg álitamálin. Og ég veit ekki hvort til sé einhver óskráð regla um að varasamt sé að dómari í dómsmáli fari með verjanda máls í bíó meðan á málflutningi stendur eða sé yfirhöfuð mikið að hanga með honum á því tímabili. Svo að tekið sé dæmi af knattspyrnuleik – þar sem ég þekki að vísu ekkert til – held ég að það sé fátt við því að segja að dómari og þjálfari liðs séu vinir utanvallar og fari saman í bíó en ég veit ekki hvernig það kæmi út í ef þeir færu saman í hálfleik þar sem dómarinn væri að dæma og þjálfarinn að þjálfa og fengju sér pylsu. Bara þeir og vinur þeirra úr liði þjálfarans. Hvað myndu mennirnir í hinu liðinu segja? Hvernig yrði litið á dóma viðkomandi í seinni hálfleik?

Það er nú það. Svo margt hér á landi virðist talið í lagi sem þætti varasamt í löndum þar sem óskráðar siðareglur eru rótgrónari, samgangur fólks stífari og háðari uppruna og stöðu. Þetta er soddan samfélagskríli hér og til allrar hamingju hálfstéttlaust og fólk tengist svo margvíslegum vina- og hagsmunaböndum. Samfélagið er allt þéttriðið hagsmunaneti þar sem við eigum öll hönk upp í bakið á einhverjum sem á hönk upp í bakið á einhverjum öðrum sem kannski á hönk upp í bakið á manni sjálfum. Hér er almennt ansi mikil hönk. Við erum þremenningar og makar systkinabarna, skólasystkin, nágrannar, saman í boltanum, gamlir sénsar, saman í sjósundi, foreldrafélaginu, vinnufélagar, allt í einni hagsmunabendu þvers og kruss. Og gerum hvert öðru alls konar greiða, vegna þess einfaldlega að við erum upp til hópa frekar almennileg.

Þetta þéttriðna samfélagsnet okkar hefur ótal kosti. Það vitra fólk sem skapaði Gay-pride hátíðina áttaði sig til dæmis betur á þessu tengslaeðli samfélagsins en margur annar þegar það lagði áherslu á að hátíðin skyldi vera fjölskylduhátíð, skyldi binda en ekki losa, laða en ekki hrinda.

Þannig að óskráðar reglur eru kannski óljósari hér en víða annars staðar þar sem rétt og röng hegðun lýtur ströngum en ósýnilegum reglum. Þetta er ágætt þegar eitthvað kemur upp á og við hendum frá okkur daglegu dóti og léttum undir með hvert öðru. Og kannski er það ágætt í venjulegu árferði. En það er ekki venjulegt árferði.

Og hvað með það? Þetta: fólkið sem þjóðfélagið samanstendur af, fólkið þarna úti, smiðirnir, sjómennirnir, meinatæknarnir, lyfjafræðingarnir, tölvufræðingarnir, skrifstofufólkið, deildarfulltrúarnir, sjúkraliðarnir, kennararnir – fólkið sem myndar þetta þéttofna net, þetta þetta litla samfélag – það treystir ekki lengur æðstu stofnunum samfélagsins. Það treystir ekki alþingi. Það heldur að þar sitji fólk sem hugsi um það eitt að skara eld að sinni köku. Það treystir ekki kirkjunni, er hætt að þykjast trúa á guð, nennir varla lengur að trúa á þetta „eitthvað" sem Íslendingar hafa þó til skamms tíma sagst trúa á og tigna. Það treystir ekki dómstólunum.

Það sér Héraðsdóm sem hvað eftir annað fær dóma sína í hausinn frá Hæstarétti með áminningum um fúsk. Það sér Hæstarétt sem ógilti kosningar til Stjórnlagaþings með veigalitlum rökstuðningi. Það sér Bridgefélagann og Frændann. Það sér ekki lengur Sérstakan saksóknara að vandræðast með þessar möppur í sjónvarpsfréttunum vegna þess að hann er horfinn bak við skjalafjallið. Það sér afskriftir og aflausnir allra aflendinga. Það sér fjárglæframenn sem eru forhertir; það sér yfirstétt sem er spillt.
Þeir sáust saman á bíó, dómarinn og verjandinn – meðan hún hefur sjálfsagt verið heima að grúfa sig ofan í skjalafjallið, konan sem sækir málið gegn Baldri Guðlaugssyni, fyrrum ráðuneytisstjóra og innstakoppi Sjálfstæðismanna, sem seldi bréfin sín í bankanum í kjölfar funda þar sem bág staða bankanna var trúnaðarefnið. Hvað með það? Þetta: traust er ekki einkamál dómarans. Það er ekki nóg að hann treysti sér fullkomlega. Honum – og samfélaginu öllu – er höfuðnauðsyn á því að aðrir hafi traust á honum.

Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 25. maí. 2012 06:00

Raunhæfa planið

Þegar gjaldeyrishöft voru sett á í kjölfar hrunsins töldu flestir þau tímabundna ráðstöfun...  

Meira
Fastir pennar 25. maí. 2012 06:00

Umsókn um málfrelsi

Fyrir seinustu alþingiskosningar bauð RÚV framboðunum að fá ókeypis kynningartíma í sjónva...  

Meira
Fastir pennar 24. maí. 2012 06:00

Hin "sterka vísindahyggja“

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skrifaði athyglisverða grein hér í blaðið í síðust...  

Meira
Fastir pennar 23. maí. 2012 06:00

Kostur á kjarabót

Undanfarin ár hafa Íslendingar sem hyggja á fasteignakaup getað farið inn á vefsíður Íbúða...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Atkvæðaveiðigjald

Ríkisstjórnin kynnti í síðustu viku með talsverðum lúðrablæstri svokallaða fjárfestingaáæt...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Velferðarráðherra og sérgreinalæknar?

Í umræðunni undanfarið hefur verið tíðrætt um gjöld vegna komu til sérfræðilækna og svokal...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 20:00

Er meyjarhaftið mýta?

Sæl, Sigga Dögg. Ég las greinina þína um mýtuna um þröngu píkuna og var mjög hrifin. Mig l...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Hinn ómissandi óþarfi

Listahátíðin í Reykjavík var alltaf stórviðburður í lífi föður míns....  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Langtímaatvinnuleysi gefinn gaumur

Eftir langt skeið þar sem atvinnuleysi var nánast óþekkt á Íslandi skall það á af þunga ve...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Goðsögnum hnekkt

Háskóli Íslands hefur kannað hvernig einkunnir nemenda skiptast eftir þeim framhaldsskólum...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Uppvakningur tekinn í fóstur

Sagt var að siðfræði margra þeirra sem áttu og stjórnuðu gömlu bönkunum fyrir hrun hefði r...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 11:03

Til varnar Suðurnesjum

Pabbi vann tvo vetur í Grindavík eftir að hann kláraði kennaranám, frá 1972 til 1974. Pabb...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 08:00

Lög lygum líkust

Í frumvarpi að lögum um fjölmiðla sem nú liggur fyrir þinginu er lagt til að útlendingar u...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 06:00

Ríkisbónus

Í desember 2009 var samið um uppgjör milli gamla og nýja Landsbankans. Í því fólst meðal a...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Óttinn við upplýsingar

Þórunn Sveinbjarnardóttir, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, skrifaði grein hér í b...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Útlendingarnir ógurlegu

Allir hafa lent í einhverjum vandræðum með nágranna sína. Lengi var saga hvers lands líka ...  

Meira
Fastir pennar 16. maí. 2012 06:00

Brjótið lög!

Íslensk stjórnvöld hafa um langt skeið sett mikinn þrýsting á lífeyrissjóði landsins um að...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 08:00

Tímamót í mannréttindabaráttu

Það eru merkileg tímamót í réttindabaráttu samkynhneigðra þegar valdamesti maður heims, Ba...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 06:00

Dómur Landsdóms - fyrri hluti

Hinn 23. apríl sl. kvað Landsdómur upp dóm í máli fyrrverandi forsætisráðherra. Hann marka...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Það gefur á bátinn …

Það eru ekki margar stéttir sem njóta almennrar virðingar í samfélaginu....  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Skýrar línur

Ólafur Ragnar Grímsson forsetaframbjóðandi birtist landsmönnum í gamalkunnugum, pólitískum...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 03:13

Heimilisreksturinn

Ég og konan mín keyptum okkar fyrstu íbúð fyrr á þessu ári. Samhliða því fórum við yfir re...  

Meira
Fastir pennar 12. maí. 2012 06:00

Pólitík eða gæði

Vísindarannsóknir á Íslandi eru fjársveltar. Þar að auki er alltof stórum hluta þeirra tak...  

Meira
Fastir pennar 12. maí. 2012 06:00

Málþófið

Í tímaþröng eru mál þæfð í öllum þjóðþingum. Tímaþröng er klípa sem ríkisstjórnir koma sér...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Lifid
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Hvað með það?