Hvað er „Liberal Democrats“ og hvað mundi það þýða fyrir íslenskt samfélag

Fréttablaðið Aðsendar greinar 04. febrúar 2012 06:00
Guðmundur G. Kristinsson
sölu- og markaðsstjóri
Guðmundur G. Kristinsson sölu- og markaðsstjóri
Guðmundur G. Kristinsson skrifar:
Ég heyrði talað um „Liberal Democrats“ og velti fyrir mér hvað þetta væri á íslensku. „Lýðfrelsi“ er líklega það sem þetta þýðir og þá snýst þetta líklega um frelsi lýðsins eða þáttökurétt almennings í samfélaginu til að hafa frelsi til ákvarðana, frelsi til tjáningar, frelsi til skoðana og sjálfstjórnar í eigin málum.

Undanfarin ár hefur fólk fengið sig fullsatt af íslenskum stjórnmálum og því gegndarlausa hagsmunapoti sem viðgengist hefur í áratugi. Þjóðfélagið er gegnsýrt af klíkuhópum með hagsmunagæslu fyrir sig og sitt umhverfi og þar má nefna stjórnmálaflokka, fjárfesta, fjármagnseigendur, atvinnulífið, verkalýðsumhverfið, lífeyrissjóðina, trúfélög og fleiri.

Þeir sem ekki eru innmúraðir í þessa hópa í gegnum fjölskyldu- eða vinatengsl, fá lítið að segja og almenningur hefur þarna nánast engin lýðræðisleg áhrif. Embætti, störf og áhrif erfast á milli kynslóða og síðan vinna þessir klíkuhópar leynt og ljóst að því að tryggja hagsmuni fyrir hver annan. Hversu oft sér maður ekki útbrunna stjórnmálamenn fá embætti í opinberu umhverfi eða forstjórastarf í ríkisfyrirtæki.

Er hægt að breyta ástandinu og auka sín áhrif á þróun samfélagsins? Þá þarf að taka virkan þátt í þjóðmálum og gæta vel að sínum hagsmunum gagnvart ofríki stjórnvalda. Í dag er ekkert stjórnmálaafl á Íslandi sem er fulltrúi þeirrar hugmyndafræði sem kallast „Liberial Democrats“ og margir borgaralegir stjórnmálaflokkar í Evrópu aðhyllast. Það er þörf á slíku stjórnmálaafli til að koma í veg fyrir áframhaldandi misnotkun klíkuhópa á félagslegum réttindum almennings.

Íslendingar hurfu árið 1262 frá stjórnarformi höfðingjaveldis yfir í einræði erlendra konunga, en þjóðfélagslega réðu bændahöfðingjar áfram ríkjum og var almenningur; búðsetumenn, þurrabúðarbændur og hjáleigubændur, því ofurseldur forræði þeirra allt fram á 20. öld. Í byrjun 20. aldar tók útgerðaraðallinn við forræðishlutverkinu, en missti það tímabundið til auðmanna í byrjun þessarar aldar.

Þetta sjálfskipaða höfðingjaveldi sérhagsmunahópa, sem þróast hefur í íslensku samfélagi, verður í raunverulegu lýðræðis- og lýðfrelsislandi að víkja fyrir frelsi og hagsmunum almennings.

Íslendingar þurfa lýðveldi að evrópskri fyrirmynd þar sem skilið er á milli framkvæmdarvalds, dómsvalds og löggjafar- og fjárveitingavalds. Fara þarf að fordæmi margra lýðvelda í Evrópu – s.s. Finnlands – um kerfi „eftirlits, aðhalds og jafnvægis“. Kjósa forseta í beinni kosningu sem færi með framkvæmdarvaldið og skipaði forsætisráðherra og aðra ráðherra sem ættu ekki sæti á Alþingi. Alþingi færi með löggjafar- og fjárveitingavaldið, skipaði dómara og færi með eftirlit með framkvæmdarvaldinu í formi öflugra þing- og rannsóknarnefnda.

Hlutverk framkvæmdarvaldsins yrði þá að framkvæma vilja þingsins, sem birtist í formi laga og þar á meðal fjárlaga. Alþingi mundi skammta framkvæmdarvaldinu fé og forseti og ríkisstjórn þyrftu að tryggja fjármagn þaðan fyrir sín verkefni. Alþingi hefði þannig raunverulegt eftirlit með fjárútlátum framkvæmdarvaldsins.

Það er ástæðulaust að blása til Stjórnlagaþings og setja nýja stjórnarskrá ef löggjafarvaldið og framkvæmdavaldið geta virt ákvæði stjórnarskrárinnar að vettugi. Ef setja á nýja stjórnarskrá, þá þarf einnig að setja á fót Stjórnlagadómstól t.d. að þýskri fyrirmynd, þannig að einstaklingar, félög og fyrirtæki geti kært löggjafar- og framkvæmdarvaldið til slíks dómstóls telji þeir á sér og stjórnarskránni brotið.
Mannréttindadómstóll Evrópu hefur dæmt að með núgildandi fiskveiðilögum sé íslenska ríkið að brjóta mannréttindi á almenningi, sem hefur engin úrræði til að stöðva framkvæmdarvaldið í þessum brotum. Hér þarf úrræði og Stjórnlagadómstóll er slíkt úrræði. Hann getur fellt úr gildi lög sem brjóta gegn stjórnarskránni og þeim alþjóðlegu sáttmálum sem Ísland hefur undirgengist.

Stjórnlagadómstóll er eins og eitur í beinum íslensku stjórnmálaflokkanna og eiginhagsmunaaðilar vilja hafa sjálfdæmi um hvernig túlka beri stjórnarskrána og hvort samningur eins og EES-samningurinn standist stjórnarskrána eða ekki. Þeir vilja ekki dómstól sem getur stöðvað hagsmunagæslu þeirra og þess vegna hafa þingmenn okkar sjaldan eða aldrei minnst á að setja hér á fót Stjórnlagadómstól, því hann gæti stöðvað Alþingi og stjórnsýsluna þegar kemur að túlkun stjórnarskrárinnar.

Venjulegt fólk getur lagt grunn að lýðræðislegum breytingum og komið í veg fyrir áframhaldandi hagsmunagæslu þeirra klíku hagsmunahópa sem hafa hertekið landið í áratugi. Fólk þarf bara að spyrja sig hvort gömlu stjórnmálaflokkarnir, þreyttir og ráðalausir stjórnmálamenn á flótta í nýja stjórnmálaflokka eða skemmtikraftar á egósiglingu, sé leiðin til betra lýðræðis. Besta leiðin til að breyta stjórnmálum á Íslandi snýst um að byggja upp nýtt lýðræðislegt borgaralegt stjórnmálafl venjulegs fólks undir formerkjum „Liberal Democrats“ eða lýðfrelsis.

Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Aðsendar greinar

Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Fiskveiðistjórnunin. Allan sannleikann, takk!

Ógnandi mynd er nú þrengt inn í þjóðarsálina með auglýsingum og fyrirsögnum í fjölmiðlum u...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Friðun í herkví sveitarfélaga og bænda

Umhverfisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, segir í fréttaskýringu (Friðlýsing náttúrusvæða)...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Um vald forsetans

Margt bendir til að vandi okkar Íslendinga um þessar mundir sé ekki síður menningarlegur e...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Gulrætur og villandi samanburður

Fréttablaðið birti þann 8. maí sl. grein um framleiðslu ísraelska fyrirtækisins Protalix B...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Ekki var Huang gerður strámaður

Í blaðaviðtali í ágúst í fyrra kynnti Hjörleifur Sveinbjörnsson, yfirþýðandi í Þýðingarmið...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Þegar tunnurnar þagna

Ég er þreyttur á að vera reiður. En samt var eigninni minni stolið ásamt öllu mínu sparifé...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

„Nýja háskólasjúkrahúsið – kjarni málsins“

Í aðsendri grein Sighvats Björgvinssonar þ. 21. maí 2012 greinir Sighvatur snöfurmannlega ...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Svar við bréfi Sighvats

Í stuttri grein Sighvats Björgvinssonar í Fréttablaðinu 24. maí sl. þar sem hann þakkar fy...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Þrír menn og króna

Árið 2006 tókum við hjónin lán fyrir íbúð. Við áttum von á okkar fyrsta barni og fannst áb...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Þú ert stunginn, það er vont og þú færð engan pening

Á hverjum degi láta um 70 manneskjur það yfir sig ganga að víkja í eina klukkustund frá da...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 16:00

Eru Íslendingar vel menntuð þjóð?

Því er iðulega slegið fram sem sönnu að þrátt fyrir bágan efnahag og erfitt ástand hafi Ís...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 11:48

Óskabarn stjórnvalda: þögull forseti

Það þótti ekki tiltökumál þegar að Viðskiptaráð hreykti sér af því fyrir hrun að stjórnvöl...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Takk, Jóhannes

Ég þakka Jóhannesi Gunnarssyni lækni kærlega fyrir svar hans við grein minni um Landspítal...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Er allur þjófnaður í matvöruverslunum tilkynntur til lögreglu?

Undanfarin ár hefur talsmaður matvöruverslunar mætt reglulega á útvarpsstöðina Bylgjuna og...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Stjórnmálasamtökum er gert mishátt undir höfði

Mikilvægt er í samfélagsumræðunni að sanngirni sé gætt í samanburði á sýnileika stjórnmála...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Spurningar áréttaðar

Í grein hér í blaðinu þann 3ja maí síðastliðinn spurði ég forystu Bændasamtaka Íslands, að...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Kynheilbrigðismál – ekki er ráð nema í tíma sé tekið!

Gagnleg umræða um kynheilbrigðismál hefur verið í fjölmiðlum að undanförnu. Rætt hefur ver...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 11:53

Nokkur orð um Vaðlaheiðargöng

Töluverðar deilur hafa átt sér stað undanfarin misseri varðandi fyrirhugaða framkvæmd Vaðl...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Er þjóðin bótaskyld vegna gjafakvótans?

Núverandi kvótahafar hafa ítrekað smjattað á málsókn gegn ríkinu verði kvótinn innkallaður...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Boðið upp í dansinn

Úr þessum penna hefir margsinnis dropið, að sagnfræðingar framtíðar muni dæma harðast allr...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Sagan af brúnu tunnunni

Ég myndi helst vilja eignast hænur til að breyta matarafgöngunum mínum í egg, en get það e...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Við biðjum Skálholti griða

Sagan segir að Gissur Ísleifsson hafi um aldamótin 1100 gefið Skálholtsland með því skilyr...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Sameinum Neytendastofu og talsmann neytenda

Í byrjun árs 2010 boðaði forsætisráðherra að raunhæft væri að fækka 200 stofnunum ríkisins...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Á nútíminn erindi á Bessastaði?

Frá unga aldri hef ég litið á forsetaembættið sem formlegt embætti, þar sem einungis fína ...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Ferðamenn + viðhald ferðastaða = gistináttaskattur?

Skattlagningarform ferðamannaskatts er ekki í samræmi við markmið samhangandi laga þó að h...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 16:50

Ég hafði val

Í nokkur ár hef ég heyrt málefnaleg rök um þróun handboltans sem og innihaldslausar umræðu...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Sátt í Aserbaídsjan

Borgin Shusha tilheyrði Aserbaídsjan fram til 8. maí 1992, þegar hún var hernumin af Armen...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Ljósnet fyrir neytendur

Síminn hefur nýlega sagt frá því að fyrirtækið hafi hafið annan hluta Ljósnetsvæðingar sem...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Til Heiðu

Ekki hafði ég ætlað mér að standa í ritdeilu en í svari Heiðu Kristínar Helgadóttur (Til k...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Aðbúnaður dýra á Íslandi

23-25. des. sl. var viðtal í Fréttatímanum við Árna Stefán Gunnarsson þar sem hann m.a. tj...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Pólitískt hlutverk forsetans

Andstætt því sem stundum er gefið í skyn eru íslensk stjórnlög að meginstefnu skýr um stjó...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Lína lifir!

Á fundi sínum í Ósló 26. apríl sl. samþykktu norrænu mennta- og menningarmálaráðherrarnir ...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Jákvæð samskipti

Einelti er því miður afar alvarlegt samfélagslegt vandamál og sem slíkt er nauðsynlegt að ...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Slegist við strámann á Fjöllum

Merkilegur andskoti hvað við erum léleg að ræða málin. Hér er lenska að virða ekki skoðani...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Öflugt sjúkrahús - kjarni málsins

Um þessar mundir er í nágrannalöndum Íslands víða verið að rífa sjúkrahúsbyggingar sem ekk...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Flokkur eða hagsmunasamtök?

Meðan hagsmunasamtök berjast fyrir afmarkaðan hóp manna sem á eitthvað sameiginlegt, berja...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Sérfræðingur að sunnan

Helga Vala Helgadóttir hefur í nýlegu viðtali við Fréttatímann og í grein í Fréttablaðinu ...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Opið bréf til menntamálaráðherra

Nú í vor sóttu foreldrar þroskaskerts drengs á ellefta ári um skólavist fyrir drenginn í K...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 16:10

Stuðningsgrein: Að kveða burt snjóinn

Það blása frískir og fjörugir vorvindar um landið. Æðarfuglinn hreiðrar um sig í Bessastað...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 06:00

Nýja háskólasjúkrahúsið – kjarni málsins

Umræðan um risabyggingu nýs spítala í miðbæ Reykjavíkur er hafin. Halldór Laxness orðaði u...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 06:00

Ráðherrann og samræðugenin

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skrifaði einkar athyglisverða grein í Fréttablaðið...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Forseti og siðferði

Í samfélögum Vesturlanda nú á dögum eru tvær valdamiðstöðvar helstar. Önnur er á vettvangi...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Hvenær vegur maður að…

Þann 30. apríl sl. voru 15 og 16 ára gamlir hælisumsækjendur dæmdir í 1 mánaðar langt óski...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Ný atvinnustefna – framkvæmdum hraðað

Aðgerðir ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum hafa skilað áþreifanlegum árangri. Enn dregur ...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 12:25

NASA - hugleiðing

Þegar ég las greinina hans Páls Óskars þar sem hann sagði frá því búið væri að segja upp s...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Forsetinn: Tákn eða afl

Ég held ekki að það sé sérlega eftirsóknarvert að vera forseti. Líklega er þó skárra að ve...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Þegar ég missi trúna á mannkyninu

Heima í Neskaupstað er eitt af þeim glæsilegu félagsheimilum sem landið státar af. Í því f...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Verður þá enginn fiskur veiddur meir?

Útgerðarfyrirtæki landsins auglýsa nú grimmt gegn fyrirhuguðum breytingum á fiskveiðistjór...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Stefnumót að vori

Það vorar og Listahátíð í Reykjavík verður sett í dag. Næstu vikur verður hægt að næra and...  

Meira
Aðsendar greinar 17. maí. 2012 06:00

Til kjósenda

Fulltrúar Besta flokksins buðu sig ekki fram til borgarstjórnar til þess að standa vörð um...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Lifid
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Aðsendar greinar / Hvað er „Liberal Democrats“ og hvað mundi það þýða fyrir íslenskt samfélag