Innlent

Húsmæður sögðu Reykdalsstíflu lífshættulega árið 1970

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Hafnarfjarðarbær kannast ekki við kvartanir vegna stíflunnar en skrifað var um það í Vísi fyrir 45 árum.
Hafnarfjarðarbær kannast ekki við kvartanir vegna stíflunnar en skrifað var um það í Vísi fyrir 45 árum. Vísir/Vísir/Ernir

Þrátt fyrir að Hafnarfjarðarbær segist ekki hafa fengið neinar kvartanir yfir Reykdalsstíflu, sem stendur neðan við Lækjarkinn, segjast íbúar hafa kvartað yfir frágangi og umhverfi stíflunnar. Árið 1970 kvörtuðu til að mynda húsmæður í götunni og sögðu börn sín í sífelldri hættu.

Þessi frétt birtist í Vísi árið 1970.

Slys átti sér stað við stífluna á þriðjudag en þá voru tveir drengir hætt komnir eftir að hafa fest sig í fossi sem rennur af stíflunni. Annar drengjanna hefur verið útskrifaður af spítala en hinum er haldið sofandi.



„Við erum orðnar langþreyttar á að bíða eftir framkvæmdum bæjaryfirvalda. Höfum margsinnis kvartað undan frá ganginum hér við Lækinn, en það virðist ekkert duga," sögðu nokkrar húsmæður við Lækjarkinn í Hafnarfirði blaðamanni Vísis árið 1970.



„Allt frá því þetta hverfi byggðist hér, hafa börnin manns verið í lífshættu beinlínis, þegar þau fara hér út fyrir að leika sér,“ var haft eftir einni þeirra í blaðinu. Þáverandi bæjarstjóri Hafnarfjarðar, Kristinn Ó. Guðmundsson, sagði í samtali við Vísi að til stæði að fylla upp og grynna lækinn.

Samkvæmt upplýsingum frá Hafnarfjarðarbæ var farið í lagfæringar við Lækinn sjálfann árið 1971. Ekki liggur þó nákvæmlega fyrir hvað var gert.

Tíu árum áður átti sér stað banaslys neðan við stífluna í Læknum sjálfum. Í janúar árið 1960 lést tveggja ára stúlka eftir að hafa lent í vatninu. Það var fyrsta banaslysið sem átti sér stað, samkvæmt fréttum á þeim tíma. 

Í umfjöllun blaða frá því þegar slysið átti sér stað var þetta þó ekki eina slysið sem þekkt var við Lækinn. Sagt er frá því að drengur hafi verið hætt kominn á vatninu, sem lagt var þunnum ís, en vegna snarræðis hafi honum verið bjargað. Þá er sagt frá því að fleki hafi sokkið undan öðrum.

Steinunn Þorsteinsdóttir, upplýsingafulltrúi bæjarins, segir að fundað hafi verið með forsvarsmönnum Reykdalsfélagsins, sem stóðu fyrir endurbyggingu stíflunnar árið 2006, um hvernig væri hægt að koma í veg fyrir frekari slys á svæðinu. Hún segir að ekki verði veitt meira vatn í lónið fyrr en ákvarðanir liggi fyrir um aðgerðir.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×