Húsið gæti fokið til Færeyja Henry Birgir Gunnarsson skrifar 17. október 2013 07:00 mynd / pjetur „
Það er verið að afla gagna núna svo hægt sé að taka einhverjar ákvarðanir með framhaldið,“ segir Jóhann G. Kristinsson, vallarstjóri Laugardalsvallar. Það verður nóg að gera hjá honum næstu vikurnar svo hægt verði að spila landsleik á vellinum um miðjan nóvember. Völlurinn er ekki upphitaður og það eina sem KSÍ á til þess að verja hann er dúkur. Hann mun líklega duga skammt ef það fer að frysta hraustlega. „Það er erfitt að festa dúkinn almennilega niður. Það fara bara litlir hælar í hann. Dúkurinn gæti farið fljótt út í Laugardalslaug. Það hafa komið ýmsar hugmyndir á borðið sem verið er að skoða. Þó svo að það sé hægt að gera eitthvað í einu landi er ekki þar með sagt að hægt sé að gera slíkt hið sama á Íslandi.“Loftbóluhúsið í Hveragerði hefur staðið af sér íslenskt veður. Ekki er þó möguleiki að festa slík hús eins vel á Laugardalsvelli. Engu að síður er verið að skoða möguleikann á að setja svona hús yfir völlinn.Jóhann varðist allra frétta varðandi þær hugmyndir sem menn eru að skoða en gaf þó eina upp. Sú hugmynd kom nefnilega upp að setja loftbóluhús yfir völlinn sem gæti haldið honum heitum. Slíkt hús má meðal annars finna í Hveragerði. „Það er hægt að fá svona loftbóluhús frá útlöndum. Það er samt ekkert víst að það sé lausn fyrir okkur hérna heima. Það fer mikill tími í að setja það upp og taka það niður,“ segir Jóhann. Hann bætir við að erfitt yrði að festa húsið niður og ekki sé hægt að steypa það eins og í Hveragerði. „Ef það kemur íslenskt rok gætum við hreinlega fundið þetta hús í Færeyjum.“ Jóhann reiknar með að þeir setji dúkinn á völlinn til þess að byrja með. Vallarstjórinn sjálfur er pollrólegur og er ekki andvaka af áhyggjum. „Ég sef alveg. Þetta er bara áskorun og það er gott teymi að vinna í þessu máli. Svo tökum við sameiginlega ákvörðun um hvað skal gera. Við verðum að standa og falla með því.“ Þetta verður í fyrsta skipti sem knattspyrnulandsleikur fer fram á vellinum í nóvember. Aðeins einu sinni hefur verið spilað á vellinum í nóvember en það var ekki svona seint. „Það var Evrópuleikur á milli Fram og Rapid Vín þarna 6. nóvember árið 1985. Þá var völlurinn frosinn og hann var aðeins loðnari.“ Fram vann leikinn, 2-1, á snævi þöktum vellinum.
HM 2014 í Brasilíu Mest lesið „Horft illum augum á þannig taktík í hlaupaheiminum“ Sport Eins og kleina þegar hún upplifði martröð spyrilsins Fótbolti Tilfinningaþrungin stund þegar Magnús Máni kom í mark Sport Allt jafnt í Fulham og bæði lið bíða enn eftir fyrsta sigri Enski boltinn Yfirgaf æfingaferð Marseille í áfalli Fótbolti Onana með í dag en Man. Utd að landa markverði Enski boltinn Pólverjar bæta við sig Kana fyrir EM Körfubolti Arnar og Bjarki unnu golfmót Golf Kom inn á fyrir Dag, skoraði og kýldi mótherja Fótbolti Sjáðu markaveislu Arsenal og fullkomna byrjun Tottenham Fótbolti Fleiri fréttir Albert lagði upp mark Fiorentina Í beinni: FH - ÍBV | Sæti í efri hlutanum undir Sjáðu mark Júlíusar í Svíþjóð Í beinni: KA - Fram | Hart barist á Akureyri Daníel skoraði gegn Víkingsbönum Sætur sigur í fyrsta leik Ísaks í efstu deild Þýskalands Allt jafnt í Fulham og bæði lið bíða enn eftir fyrsta sigri María gaf tóninn í sigri eftir átta töp í röð Fullkomin byrjun Everton á nýja heimilinu Áfram í marki Man. Utd eftir mistökin Sjálfsmark skráð á Elías sem fagnaði sigri Kristján tekinn við liði í Portúgal Eins og kleina þegar hún upplifði martröð spyrilsins Onana með í dag en Man. Utd að landa markverði Sjáðu Brynjólf skora gegn meisturum PSV Kom inn á fyrir Dag, skoraði og kýldi mótherja Sjáðu markaveislu Arsenal og fullkomna byrjun Tottenham Guðlaugur Victor til Danmerkur á ný Yfirgaf æfingaferð Marseille í áfalli Keflvíkingar létu mörkunum rigna gegn Völsungi Sjálfsmark í blálokin bjargaði Börsungum Þórsarar á toppinn Orðinn langþreyttur á glímunni við Útlendingastofnun Eze í treyju númer tíu og byrjar á stórleik við Liverpool Þrír leikir í enska: Draumabyrjun Outtara en gömlu félagarnir unnu líka Öruggur sigur Arsenal á nýliðunum Þróttur fær tvo tíma á toppnum og Fylkir úr fallsæti Ronaldo þarf enn að bíða eftir titli þrátt fyrir tímamótamark Hjörvar fékk treyju með kveðju frá De Gea í beinni Skelfileg mistök City og fullkomin byrjun Spurs Sjá meira